Október
Ingólfur Einarsson
Ingólfur Einarsson
Ingólfur Einarsson

18.10.2005 Október

Reykingabannið jákvætt hjá matargestum

Kaffihornið á Höfn hefur verið reyklaus staður síðan 1.júní sl. og segir eigandinn Ingólfur Einarsson að hann og starfsfólk hans séu mjög ánægð með það og andrúmsloftið svo mikið betra. Þetta hefur gengið mjög vel, það er helst á kvöldin og nóttunni að smá mál verða því auðvitað eru ekki allir ánægðir með þetta segir Ingólfur, kvöld og næturtraffíkin hefur heldur minnkað út af þessu. Upp til hópa er reykingabannið jákvætt hjá matargestum en stundum dálítið erfitt gagnvart kaffigestum sem margir vilja fá sér sígarettu með kaffinu og við höfum misst nokkra úr þeim hóp. Sumarið hjá okkur er búið að vera mjög gott og ég hef trú á að við fáum aukningu í matargestum ekki síst með okkar vinsæla helgarmatseðli. Við fáum oft að heyra álit beggja hópanna með eða án reyks, og tökum eftir að yngra fólkið er mun jákvæðara með reykingabannið en það eldra og það furðulega er að konur eru oft mun erfiðari við að eiga en karlar með að hlíta reykingabanninu.

Ingólfur þarf ekki að hafa áhyggjur skorti á viðskiptavinum því um 190 skólabörn fá alla virka daga hádegismat á Kaffihorninu og fer þeim fjölgandi eins eru sendir matarpakkar til starfsmanna Landsbankans og Rarik hér á staðnum. Stutt er í jólavertíð veitingastaðanna og eru pantanir eru farnar að berast í jólahlaðborðin og komnar pantanir fyrir fermingarveislur næsta vor. Talsvert er enn um ferðafólk og varla líður sá dagur að útlendingar komi ekki inn á Kaffihornið að fá sér hressingu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica