Leitað að leikurum til að klæðast búningi Napoleons
Kvikmyndafyrirtækið Pegasus auglýsir nú á Höfn eftir karlmönnum til að leika í auglýsingu fyrir franska sjónvarpið. Leikararnir þurfa að vera á aldrinum 30-50 ára og munu þeir klæðast búningi Napoleons sem birtist í margfaldri útgáfu í frönsku auglýsingunni. Pegasus leitaði til Leikfélags Hornafjarðar til að aðstoða við leitina enda ekki í fyrsta skipti sem leikfélagið tekur að sér að útvega leikara fyrir kvikmyndir og auglýsingar hér á staðnum. Magnús J. Magnússon formaður leikfélagsins sagði að það væri að færast í vöxt að leitað sé til leikfélagsins með slík verkefni en það stærsta hafi verið á síðast ári þegar leikfélagið aðstoðaði við að fá leikara í Bjólfskviðu sem sýnd verður hér á landi í haust. Þeir karlmenn sem hafa áhuga á að leika í þessari auglýsingu eru beðnir um að koma í húsnæði leikfélagsins á Fiskhól í kvöld kl.20:30 til skrafs og ráðagerða.
Á staðnum verða fulltrúar frá Pegasus og munu þeir taka myndir af þeim sem mæta og velja úr. Kvikmyndatakan fer síðan fram á miðvikudag og fimmtudag í þessari viku.
Þessa stundina standa yfir tökur upp á jökli en þar er þoka þessa stundina og ekki besta veður til upptöku.





Skrifa athugasemd