Október
Flóð á Höfn 15.10 2005
Flóð á Höfn 15.10 2005
Flóð á Höfn 15.10 2005
Mynd 5 af 5
1 2 3 4 5

16.10.2005 Október

Flóðið sjatnað og allar götur komnar í lag

Lífið og tilveran á Höfn er komin í sinn venjulega farveg, flóðið sjatnað og allar götur komnar í lag. Úrkoma minnkaði mikið eftir því sem leið á gærkvöldið og minnti veðrið mest á vorblíðu og um leið og fór að draga úr rigningunni minnkaði vatnsflóðið fljótt Eftir er þó mikil vinna fyrir bæjarstarfsmenn að hreinsa til í bænum og skoða það tjón sem þetta mikla vatnsveður hefur valdið. Ljóst er að víða hefur orðið tjón í húsum og mikil vinna fyrir húseigendur að þurrka og hreinsa. Þó vatnsflóðin hafi verið mörgum áhyggjuefni eru aðrir sem munu minnast þeirra sem bara nokkuð skemmtilegrar tilbreytni í tilverunni t.d. að geta siglt um götur miðbæjarins og margir höfðu gaman af að aka þar á bílum sínum svo ekki sé minnst á krakkana sem kunnu vel að meta þetta allt og sumir fengu sér sundsprett.

Vegagerðarmenn vinna að viðgerð á veginum í Hvalnes og Þvottárskriðum og eru allir vegir hér fyrir austan færir en að sögn Reynis Gunnarssonar tekur viðgerðin í skriðunum nokkra daga. Nokkur umferð hefur verið og telur Reynir að ekki sé hætta á skriðum nema fari að rigna aftur.

Sjá myndasafn

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica