Mikil hætta er á fleiri aurskriðum meðan rignir
Vegurinn um Hvalnes og Þvottárskriður rofnaði í gærkvöldi. Aur-og grjótskriður komu á veginn á þrem stöðum og vestan við gilið í Þvottárskriðum fór stórt stykki úr veginum niður í sjó. Vegagerðarmenn frá Höfn hafa unnið að viðgerð á veginum og sagði Reynir Gunnarsson að hugsanlega yrði hægt að komast þar yfir seinna í dag en hann vill beina þeim tilmælum til fólks að það sé ekki að reyna að fara um skriðurnar nema nauðsynlegt sé því mikil hætta er á fleiri aurskriðum meðan rignir. Flætt hefur yfir veginn á Fjarðaraurum í Lóni og smá skriða kom úr fjallinu austan við Almannaskarð og hún náði niður á veginn.
Austan við Þvottárskriður eru víða vatnsflóð yfir vegi allt til Stöðvarfjarðar og viða hætta á aurskriðum.




Skrifa athugasemd