Október
Flóð á Höfn 15.10 2005
Flóð á Höfn 15.10 2005
Fyrir framan Ráðhúsið hefur fætt yfir gögu og gangstétt.
Mynd 1 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

15.10.2005 Október

Víða hefur flætt inn í kjallara húsa

Mikill vatnselgur er núna um allar götur á Höfn og víða hefur flætt inn í kjallara húsa. Rignt hefur látlaust síðan í gærmorgun og mældist sólarhringsúrkoma í Akurnesi 149mm. Bæjarstarfsmenn hafa staðið í ströngu við að dæla burt vatni úr og frá húsum því fráveitukerfið hefur ekki undan. Í húsi við Höfðaveg stóðu húseigendur í vatnsdælingu úr eldhúsi og þvottahúsi í alla nótt og höfðu vart undan. Við Víkurbraut er sem hafsjór yfir að líta og þar er hætta á að símatengikassi fari í kaf en reynt verður að dæla vatni þar frá. Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur segir að allar tiltækar dælur séu komnar í notkun og reynt verði eftir því sem hægt er að aðstoða með dælingu. Helgi vill biðja húseigendur að hafa sérstakan vara á um og eftir háflóð sem verður í dag kl.15:30 þar sem hætta er á að flæði inn og færa verðmæti á örugga staði.

Samkvæmt upplýsingum frá veðurstofunni er útlit á að heldur dragi úr rigningunni seinna í dag en svo er útlit á að mikil rigning verði á morgun. Sjávarhæð var mikil í höfninni í gær og stórstreymi verður eftir 3 daga. Það eru þó ekki allir óhressir með allt þetta ástand a.m.k ekki krakkarnir sem nota sér óspart að sulla í vatninu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica