Október
Fantastic four
Fantastic four
Fantastic four

14.10.2005 Október

Kvikmyndasýningar að nýju í Sindrabíó

Næstkomandi sunnudagskvöld kl.20 hefjast kvikmyndasýningar að nýju í Sindrabæ og er það kvikmyndin um ofurmennin fjögur "Fantastic Four" sem verður þá sýnd. Að sögn Gunnars Inga Valgeirssonar rekstraraðila Sindrabíós þá er búið að gera upp kvikmyndasalinn og er þetta fyrsta kvikmyndin sem sýnd er eftir breytingar. Gunnar Ingi vildi taka fram að þær myndir sem eru sýndar í Sindrabíó eru ótextaðar þar sem búið er að taka í gagnið nýja tækni hér á landi til að sýna texta með kvikmyndum en því miður hefur ekki enn verið ráðist í þá fjárfestingu í Sindrabæ en stendur vonandi til bóta innan tíðar. Í Sindrabíó eru 58 sæti fyrir bíógesti.


Gunnar Ingi stefnir að því að sýna kvikmyndir a.m.k. á hálfsmánaðar fresti. Sunnudaginn 23.október er von á teiknimyndinni Madagascar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica