Byggingaframkvæmdir og lóðaúthlutanir í Sveitarfélaginu
Á þessu ári hafa verið nokkrar byggingaframkvæmdir í Hornafirði, lokið var við byggingu íbúðarhúsa á Hvalnesi og Bæ í Lóni og byrjað á byggingu íbúðarhúss í Firði í Lóni. Á Seljavöllum í Nesjum var byggt stórt fjós, verið að ljúka byggingu gisti-og íbúðarhúss á Árbæ á Mýrum, unnið við viðbyggingu og breytingar á Þórbergssetri á Hala og væntanlega verður byrjað á sumarhúsi í Svínafelli í Öræfum. Á Höfn er Íslandspóstur að undirbúa byggingu 300 ferm. húss á Shell-lóðinni við Hafnarbraut. Hákon Valdimarsson byggingarfulltrúi segir okkur hér á Hornafirði enn búa við þau sérréttindi að þurfa ekki að greiða stórfé bara fyrir lóðirnar áður en nokkuð er gert, hér kosta þær ekki krónu menn fá þær eins og þær eru, greiða byggingarleyfi og sjá svo um sinn grunn sjálfir. Hákon segir að nokkuð sé til að lóðum sem eru tilbúnar úthlutunar bæði á Höfn og í Nesjum. Þetta eru lóðir fyrir íbúðarhús, fjölbýlishús, iðnaðarhúsnæði, þjónustu og verslunarhús og einnig eru lóðir fyrir hesthús og fjárhúsabyggð.
Mikil atvinna hefur verið hjá iðnaðarmönnum á Hornafirði í sumar og hafa margir hér óskað þess að þeir væru mikið fleiri því oft er löng bið í að fá verk unnin.




Skrifa athugasemd