Fjarðaballsferðin endaði í Oddskarði
Hið árlega Fjarðaball grunnskólanna á Austurlandi var haldið í Egilsbúð í Neskaupsstað sl. föstudagskvöld. Á vegum félagsmiðstöðvarinnar Þrykkjunnar fóru 35 ungmenni úr 10. bekk í ferðina ásamt tveimur fararstjórum. Lagt var upp frá Höfn kl.18:00 og gekk allt ljómandi vel þar til komið var upp í Oddskarð en þá fór að slydda sem gerði það að verkum að bílstjóri áætlunarbílsins ákvað að snúa við en í þeirri aðgerð lenti bíllinn utan vegar með afturhjólin og komst ekki aftur upp á veg að eigin rammleik, varð því að kalla eftir aðstoð frá Vegagerð ríkisins. Á meðan beðið var eftir aðstoðinni voru ungmennin selflutt úr áætlunarbílnum niður á Eskifjörð en þar fengu þau athvarf og hressingu í grunnskólanum.
Greiðlega gekk að ná áætlunarbílnum upp og var þá orðið það áliðið að ekki þótti annað rétt en að halda heimleiðis. Farið var frá Eskifirði um kl. 01:00 og komið til Hafnar um kl. 05:00. Engin slys urðu á fólki og tóku ungmennin öllu þessu með stillingu og sagði bílstjóri áætlunarbílsins að ungmennin og fararstjórar hefðu staðið sig einstaklega vel við þær aðstæður sem þarna sköpuðust.




Skrifa athugasemd