Október
Olgeir Jóhannesson
Olgeir Jóhannesson
Olgeir Jóhannesson við nýju vélina (stór mynd)
Mynd 2 af 2
1 2

10.10.2005 Október

Þarf að afgreiða allt að 300 bretti á sólarhring

Vörubrettaframleiðsla Olgeir Jóhannessonar á Höfn hefur vaxið og dafnað vel frá því hann byrjaði að smíða vörubretti árið 2002. Fyrsta árið var framleiðslan átta þúsund bretti, síðast liðið ár fimmtán þúsund og í ár um sautján þúsund. Þegar Netagerðin flutti í Ósland keypti Olgeir ásamt fleirum húsið sem hún var í við Álaugarveg og segir hann að með því plássi hafi gjörbreyst öll aðstaða. Þetta er allt annað líf og enn betra nú þegar ég er búin að fá þessa nýju vél sem tekur við brettunum og staflar þeim þegar ég er búinn að setja þau saman. Efni í brettin flytur Olgeir inn frá Rússlandi niðursöguð í passlegar lengdir og það tekur hann um eina og hálfa mínútu að setja hvert bretti saman. Brettin eru notuð undir loðnu, síld, humar, saltfisk og ýmsar fleiri framleiðsluvörur sem unnar eru á Hornafirði. Þegar loðnuvertíð er komin í fullan gang þarf Olgeir að afgreiða allt að 300 bretti á sólarhring og 250 þegar síldarvinnsla er á fullu. Hann er nýbúinn að gera samning um sölu bretta til laxeldisins á Djúpavogi þar sem laxaslátrun er að byrja og á hann von á að með því geti orðið hátt í helmingsaukning á framleiðslunni.

Olgeir hefur verið einn að vinna við brettin en á von á að þurfa að fá starfskraft þegar vinnsla verður komin vel á stað á Djúpavogi, hann segist ekki muna getað annað öllu þá þar sem hann sér líka um að koma brettunum til kaupendanna. Olgeir er eini brettaframleiðandinn í Skaftafellssýslum báðum a.m.k. og allt til Eskifjarðar þar sem næsta brettagerð er.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica