Gospelnámskeið á Höfn
Gospeltónlist nýtur sífellt meiri vinsælda. Það á við um geisladiska og einnig hafa margir mikið gaman af því að syngja þessa tegund tónlistar. Óskar Einarsson, tónlistarmaður hefur verið leiðandi í gospeltónlist á Íslandi síðustu ár, hann er tónlistarstjóri Fíladelfíu og stjórnandi Gospelkórs Reykjavíkur. Hann hefur stúderað gospeltónlist í fjölda ára en hann er með meistarapróf í útsetningum og tónsmíðum frá University of Miami í Bandaríkjunum. Óskar hefur ferðast um landið og haldið gospelnámskeið með kirkjukórum og öðrum áhugafólki. Þessi námskeið hafa verið feykivinsæl og mikil eftirspurn. Hann kemur hingað helgina 18.-20. nóvember ásamt aðstoðarfólki og heldur námskeið fyrir Hornfirðinga. Það verður sungið alla helgina og afraksturinn fluttur á tónleikum á sunnudagskvöldinu. Námskeiðið verður haldið á Hótel Höfn, byrjar á föstudagskvöldinu, svo verður sungið allan laugardaginn og hluta sunndags.
Nánar dagskrá verður auglýst síðar. Fyrir þátttakendur verður léttur hádegisverður á laugardeginum og kaffiveitingar þess utan. Námskeiðsgjald verður aðeins 5000 kr. á mann, það er einungis fyrir kostnaði og hafa eigendur Hótel Hafnar verið mjög rausnarleg. Fyrir 3. nóvember þarf að vera búið að staðfesta og greiða þáttökugjald inn á reikning 0172-05- 6309 í Landsbankanum, kt: 630997-3139. Þeir sem hafa gaman af því að syngja eru hvattir til að vera með og ekki síst karlmennina, þeir eru mikilvægir í raddsetningu gospeltónlistar..
Áhugasamir geta skráð sig og fengið nánari upplýsingar á gospel@hfn.is





Skrifa athugasemd