Búið að opna afurðasöluna í Sláturhúsinu
Þá er komið að sláturgerðinni þetta haustið. Búið er að opna afurðasöluna í Sláturhúsi Norðlenska á Höfn og er hún í umsjá Unnar Guðmundsdóttur. Verð á heilum slátrum er 701 kr. og fylgja fjórir keppir (gervikeppir) með. Þeir sem vilja fá glænýtt kinda eða lambakjöt í frystikistuna geta fengið heila skrokka á 770 kr. kg. og eins niðursagað kjöt eftir óskum hvers og eins. Unnur segir að ekki sé möguleiki á að fá vambir hér um slóðir en hugsanlega sé hægt að panta þær frá Norðlenska á Húsavík eða Akureyri. Búið er að loka fyrir vambasölu hjá sláturseljendum á Kirkjubæjarklaustri og Egilsstöðum svo ekki er margra kosta völ vilji menn endilega fá ekta vambakeppi utan um slátrið. Unnur segir orsökina fyrir þessu vambaleysi vera vegna reglna ESB um útflutningsleyfi þessara sláturhúsa. Afurðasalan er opin frá 10-17 virka daga til 21.október. Rétt er að benda á að núna er gengið inn í slátursöluna frá bryggjunni.
Stefnt er á að sauðfjárslátrun ljúki 28. okt. og þann dag eiga þeir 23 útlendingar sem starfa í sláturhúsinu að fara úr landi. Þessir erlendu starfsmenn eru frá Bretlandi, Svíþjóð, Tékklandi, Póllandi og Þýskalandi. Íslensku starfsmennirnir hafa verið í minnihluta eða þrem færri. Þetta gengur allt vel ,,við tölum bara esperantó eins og Þórbergur", sagði Einar Karlsson sláturhússtjóri þegar hann var spurður hvaða mál væri talað þarna og hvernig samskiptin í sláturhúsinu væru.





Skrifa athugasemd