Október
Álftagerðisbræður
Álftagerðisbræður
Álftagerðisbræður

07.10.2005 Október

Álftagerðisbræður með tónleika í Hafnarkirkju.

Álftagerðisbræður halda tónleika í Hafnarkirkju næsta laugardagskvöld og eru tónleikarnir hluti af tónleikaferð þeirra félaga um Austurland. Álftagerðisbræður þeir Sigfús, Óskar, Pétur og Gísli Péturssynir eru allir bornir og barnfæddir Skagfirðingar eins og þeir gerast bestir. Undirleikari þeirra er Stefán R. Gíslason sem er stjórnandi Karlakórsins Heimi í Skagafirði. Að sögn Péturs Álftagerðisbróðurs þá er mikil tilhlökkun hjá þeim félögum að halda tónleikana í Hafnarkirkju en hingað hafa þeir félagar ekki komið saman áður. Pétur kvaðst hins vegar hafa sungið með Karlakórnum Heimi hér í Sveitarfélaginu fyrir um 20 árum síðan. Honum er það minnisstæð ferð og þá sérstaklega fyrir það að hann gisti hjá Sigga á Borg, hreindýraskyttu sem var með frábæra hreindýrasteik í matinn.

Aðspurður sagði Pétur að prógrammið sem þeir myndu flytja í Hafnarkirkju færi mikið eftir stemningu á staðnum. Tónleikarnir hefjast í Hafnarkirkju laugardagskvöldið kl. 20:30

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica