Október
heilso3
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands
HSSA við Víkurbraut

06.10.2005 Október

Ókeypis kólesterólmæling á Heilsugæslustöð í næstu viku

Fréttatilkynning

Næstkomandi miðvikudag verður Hornfirðingum boðin ókeypis kólesterólmæling (blóðfitu) og blóðþrýstingsmæling á heilsugæslustöðinni. Mælingin verður gerð með nýjum mælum, CardioChek, sem reynst hafa vel og hlotið viðurkenningu í Bandaríkjunum. Mælingarnar eru skipulagðar af Félagi hjartasjúklinga á Hornafirði og landssamtökum hjartasjúklinga í samvinnu við heilsugæsluna og lyfjafyrirtækið AstraZeneca. Fjölmargar rannsóknir á undanförnum árum hafa sýnt fram á hve nauðsynlegt er að lækka kólesteról til að koma í veg fyrir hjarta og æðasjúkdóma. Lækkun kólesteróls er mikilvægasti hlekkurinn í forvörnum á því sviði. Með hollu mataræði og hreyfingu má ná ákveðnum árangri, en oft þarf að grípa til lyfjameðferðar til að lækka kólesteról.

Þekkir þú þitt kólesteról? Ef ekki er kjörið tækifæri að líta við á heilsugæslunni miðvikudaginn 12. október,. Heilbrigðisstarfsfólk annast mælingarnar og veita upplýsingar og ráðleggingar. Boðið verður upp á rabb um mikilvægi meðferðarheldni. Að mælingum loknum mun AstraZeneca færa heilsugæslu Hornafjarðar CardioChek kólesteról mæli að gjöf.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica