Fiskidagar hjá Bestfisk
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp hjá fiskvinnslufyrirtækinu Bestfisk að halda fiskidaga á Höfn. Þeir eru haldnir í fyrsta skipti í dag og á morgun föstudag. Verði undirtektir bæjarbúa jákvæðar er stefnt á að halda fiskidaga tvisvar sinnum í mánuði. Að sögn Sívars Árna Scheving hjá Bestfisk hefur þetta framtak mælst vel fyrir hjá þeim sem eru fastakúnnar fyrirtækisins. Boðið verður upp á saltfisk, ýmsa saltfiskrétti, hið fræga konungshakk og margt fleira fiskgóðgæti í matinn. Á síðustu Humarhátíð kynnti Bestfiskur saltfiskréttina og voru þeir mjög vinsælir meðal Humarhátíðargesta.
Fiskidagarnir fara fram í húsnæði Bestfisks í Óslandi frá kl. 9 til 17 báða dagana.





Skrifa athugasemd