Október
Guðbrandur spilar
Guðbrandur spilar
Guðbrandur Jóhannesson spila við Birgir Börnsson og Sigfinn Gunnarsson (úr myndasafni)

05.10.2005 Október

Sverrir og Birgir sigurvegarar

Nú er lokið fyrsta móti Bridgefélags Hornafjarðar, Startmótinu. Þetta var tveggja daga mót, þar sem betri dagurinn gildir til sigurs. Seinni daginn mættu 7 pör, sem er nokkuð betra en fyrri daginn og er það vel. Vonandi heldur þessi fjölgun áfram. Staðan seinni daginn er þannig að í 1. sæti urðu Sverrir og Birgir með 1823 stig (65,1%), 2. sæti Grétar og Ásgeir með 1403 stig (50,1%) og í 3. sæti Gunnar og Ingvar með 1384 stig (49,43%). Þar sem betra kvöldið af þessum tveimur gildir til sigurs í mótinu er lokastaðan þannig að í 1. sæti eru Sverrir og Birgir með 65,1% skor, 2. sæti Árni og Sigfinnur með 54,6% skor og í 3. sæti Gunnar og Steinarr með 53,8% skor. Við óskum sigurvegurunum til hamingju.

Næstkomandi sunnudag verður Aðalfundur Bridgefélags Hornafjarðar og nágrennis, og hefst hann stundvíslega kl. 19:30. Eftir Aðalfundinn verður Aðalfundartvímenningurinn spilaður og þess vegna vonumst við til að sjá sem flesta á fundinum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica