Október
Skandia við Óslandsbryggju
Skandia við Óslandsbryggju
Skandia við Óslandsbryggju

04.10.2005 Október

Skip með 7 metra djúpristu munu eiga greiða leið inn um ósinn

Sanddæluskipið Skandía hefur undanfarna daga unnið að dælingu úr innsiglingunni við Hornafjarðarós en
það varð frá að hverfa fyrr í haust vegna óhagstæðrar veðráttu og sjólags en ölduhæð má ekki vera yfir 1 m.
þar sem verið er dæla. Að sögn Vignis Júlíussonar hafnarvarðar hefur verkið gengið vel og fyrir helgina var búið að dæla upp og losa rúmlega 25 þús. rúmmetrum efnis af þeim 40-60 þús. rúm. sem þarf að fjarlægja. Lengd rennunnar sem grafin verður núna er 800 metrar. Með þessari dýpkun innsiglingarinnar munu skip sem eru með 7 metra djúpristu eiga greiða leið inn um ósinn. Stefnt er á að verkinu ljúki í haust.

Vignir segir að fremur rólegt hafi verið við höfnina undanfarið en á von á að það fari að breytast þar sem síldveiðar eru að byrja. Línubátar hafa veitt sæmilega vel en handfærabátar hafa lítið farið þar sem þeir þurfa langt út til að komast í þokkalega veiði.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica