Gönguferð Nautastígur - Hvannadalur í Suðursveit
Í lok ágúst stóð Ferðafélag A-Skaft fyrir ferð þar sem genginn var Nautastígur ? Hvannadalur í Suðursveit. Hópurinn lagði af stað frá tjaldstæðinu kl: 8:30 laugardaginn 27.ágúst og var keyrt að brúnni að Steinavötnum. Þar hitti hópurinn Þorbjörgu og Fjölni á Hala sem voru fararstjórar í þessari ferð. Ekið var áleiðis inn Kálfafellsdal þar sem var stoppað við Nautastígsgil og byrjað að ganga. Eftir tæplega 2ja klst. göngu upp gilið var hópurinn kominn við þar sem hægt var að horfa niður í Hvannadal. Hópurinn renndi sér niður skriðu niður í dalinn þar sem borðað var hádegisnesti. Síðan var gengið út Hvannadal, stoppað til að spjalla, tína ber, skoða gróðurinn og njóta landslagsins og veðurblíðunnar. Síðan var gengið Klukkugil og skoðaður gamall grjótgarður sem var hlaðinn frá brún Klukkugils upp að hömrum þar fyrir ofan til að varna því að naut sem gengu á Hvannadal kæmust niður úr dalnum. Í Garðhvammi var komið að minnismerki um trékross sem Þórbergur Þórðarson tálgaði þegar hann sat yfir lömbum vorið 1902.
Gengið var niður eftir merktri gönguleið þar sem er búið að festa platta á steina með reglulegu millibili, þar sem vitnað er í Þórberg og sögur sem tengjast Suðursveit. Hópurinn kíkti aðeins inn í Rannveigarhelli og að lokum var gengið niður að veg á meðan bílstjórar fóru til að ná í jeppana. Skemmtilegur og fróðlegur dagur í Suðursveit með góðum fararstjórum.
Sjá myndasafn
Brynja Baldursdóttir





Skrifa athugasemd