September
Jóna-Edvalds-og-Askell_IMG_
Jóna-Edvalds-og-Askell_IMG_
Jóna Eðvalds, skip Skinneyjar Þinganes og Áskell í Hornafjarðarhöfn

30.09.2005 September

Jóna Eðvalds landaði 250 tonnum af síld

Jóna Eðvalds, skip Skinneyjar Þinganess, landaði á Hornafirði í gær 250 tonnum af síld sem fékkst í einu kasti á ,,Gauraslóðinni" 12 mílum suðaustan við Papey. Fyrstu síldina á þessu hausti 40 tonn, fékk Jóna Eðvalds 20.sept. Sverrir Aðalsteinsson sagði að þetta væri góð síld sem færi í frystingu. Ásgrímur Halldórsson SF kemur til veiða fyrir Skinney Þinganes núna um helgina og fer fljótlega á síldveiðar einnig er á næstunni von á síldveiðiskipinu Áskeli sem veiðir fyrir Skinney Þinganes. Sverrir sagði að enn vantaði fólk til vinnu og beiðni lægi inni hjá útlendingastofnun um leyfi fyrir sjö manns. Við eigum von á Svíum og erum að sækja um atvinnuleyfi fyrir fólk frá Filippseyjum, Braselíu, Póllandi og Bosníu-Hersegóníu. Margir erlendir starfsmenn eru í vinnu hjá okkur og þetta eru góðir og duglegir starfsmenn.

Þrír humarveiðibátar eru í síðustu veiðiferðinni á þessari vertíð og er fremur lítil veiði en að sögn Sverris hefur vertíðin verið góð þetta árið og náðist að veiða þann kvóta sem fyrirtækið á.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica