Startmót Bridgefélags Hornafjarðar
Sunnudaginn 25. sept. var fyrsta mót vetrarins hjá Bridgefélagi Hornafjarðar. Nú er ákveðið að byrja á tveggja kvölda startmóti þar sem betri árangur gildir til sigurs. 5 pör mættu til keppni og þó að auglýst hefði verið að spilamennska byrjaði stundvíslega kl. hálf átta, voru menn að koma þó nokkuð eftir þann tíma en ætla að gera betur næst og mæta þá stundvíslega kl. 19:30. Það er alltaf betra að mæta tímanlega, því að stundum þarf að hringja út auka mannskap. Úrslit þetta fyrra kvöld startmótsins var sem hér segir: 1. sæti Sverrir Guðmundsson - Birgir Björnsson 1194 stig (59,7%), 2. sæti Árni Stefánsson - Sigfinnur Gunnarsson 1092 stig (54,6%) og í 3. sæti Gunnar Páll Halldórsson - Steinarr Guðmundsson 1076 stig (53,8%)
Aðrir voru með minna, en þeir þurfa ekki að örvænta. Þar sem betra kvöldið gildir þá er bara að bretta upp ermarnar og taka vel á því næstkomandi sunnudagskvöld. Þeir sem sáu sér ekki fært að mæta, geta að sjálfsögðu komið seinna kvöldið og spilað til vinnings á mótinu. Minnt er á að spilamennska á að hefjast stundvíslega kl. 19:30





Skrifa athugasemd