September
Spilatema
Spilatema
Frá skólastarfi í Heppuskóla (Myndasafn Heppuskóli)

26.09.2005 September

Hver er ávinningur af foreldrasamvinnu í skólum?

Opinn fræðslufundur á vegum Heimilis og skóla verður haldinn í Nýheimum miðvikudaginn 28. september kl. 20:30. Fyrirlesari er Helga Margrét Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Heimili og skóla. Þar ræðir hún m.a. um mikilvægi foreldrasamvinnu í skólum. Fyrr um daginn fundar hún með foreldraráðum skólanna og einnig fundar hún með bekkjartenglum um hlutverk þeirra. Heimili og skóli eru landssamtök foreldra og veita þau ráðgjöf til foreldra og foreldrasamtaka. Þjónusta Heimila og skóla felst t.d. í því að veita foreldrum/félagsmönnum stuðning og liðveislu til að þeir geti axlað uppeldishlutverk sitt. Einnig að efla starf foreldrafélaga svo að þau verði sem virkust og finni þar vettvang til samstarfs við skólann.

Foreldrafélög við Grunnskóla Hornafjarðar hvetja foreldra til að sýna samstöðu og mæta á fræðslufundinn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica