Meira framboð á leiguíbúðum á Höfn
Fyrirtækið Gljúfurá ehf í Reykjavík hefur keypt sex íbúðir á Höfn og í næstu viku, að sögn Snorra Snorrasonar hjá Fasteignasölunni Hrauni, mun fyrirtækið bæta við þrem íbúðum í viðbót. Gljúfurá ehf. verður með þessar íbúðir til leigu og eru þegar komnir leigjendur í a.m.k. sumar þeirra. Meira framboð á leiguíbúðum auðveldar mjög fyrir þeim sem koma til Hornafjarðar að vinna og þurfa á leiguhúsnæði að halda. Snorri segir að fasteignamarkaðurinn sé búinn að vera líflegur undanfarið og mikið spurt um fasteignir mest sé það fólk á höfuðborgarsvæðinu sem hringi og eru þá að spá í að selja sín dýru hús og kaupa hús úti á landi á miklu lægra verði.
Hornfirðingar fagna því að fá svona leigumarkað á svæðið því oft hefur komið sú staða upp að leigjandi hefur þurft að fara úr leiguíbúð vegna sölu á henni.





Skrifa athugasemd