September
Þjónustuhúsið í Haukafelli formlega tekið í notkun
Undanfarið ár hefur Skógræktarfélag Austur-Skaftafellssýslu komið upp þjónustuhúsi með vatnssalernum í landi félagsins í Haukafelli. Næstkomandi laugardag, verður þjónustuhúsið formlega tekið í notkun. Af því tilefni verður boðið upp á kaffi og meðlæti í Haukafelli kl 13:00. Undanfarin tvö ár hefur félagið fengið styrk úr Styrkvegasjóði Vegagerðarinnar, til að byggja upp veginn inn að Haukafelli. Næsti áfangi er að brúa Hálsdalsánna sem liggur austan við Haukafell. Að lokinni kaffistund verða aðstæður til brúargerðar skoðaðar.
Allir sem eru áhugasamir um brúargerð og vildu leggja verkinu lið er velkomið að slást í hópinn.





Skrifa athugasemd