Ertu örugg (ur) um barnið þitt ?
Á miðvikudaginn 21. september kemur Magnús Stefánsson fulltrúi frá forvanafélaginu "Hættu áður en þú byrjar" en að því standa Forvarna og fræðsludeild lögreglunnar í Reykjavík , Félagsþjónustan í Reykjavík og Marita á Íslandi sem er forvarnasvið Samhjálpar. Magnús heldur fræðslufund með nemendum í 9. bekk í Heppuskóla á skólatíma og sýnir m.a. íslenska Maritamynd um raunveruleikann í heimi fíkniefnaneytenda hér á landi. Um kvöldið er boðaður fundur með foreldrum nemenda í 8. og 9. bekk Heppuskóla. Á fundinn kemur Magnús, Jón Garðar Bjarnason aðst.varðstjóri lögreglunnar á Hornafirði og fulltrúi frá félagsþjónustunni. Er ekki að efa að þessi fundur verður fróðlegur og vekur örugglega upp margar spurningar um hinn harða heim þeirra sem lenda í klóm fíkniefna. Foreldrar og aðrir sem vilja láta sig þessi mál varða eru hvattir til að fjölmenna á fundinn sem verður haldinn í bíósal Sindrabæjar.
Það er Heppuskóli og Æskulýðs- og tómstundaráð Hornafjarðar sem að þessari forvarnaheimsókn standa.





Skrifa athugasemd