September
Sævar og Ari á markaðtorginu í morgun
Sævar og Ari á markaðtorginu í morgun
Sævar Kristinn og Ari Þorsteinsson á Markaðstorginu í Hornabæ (úr myndasafni)

20.09.2005 September

Markaðstorg Hornafjarðar hættir í Hornabæ

Vegna sölu á Hornabæ mun síðasti markaðurinn þar verða haldinn laugardaginn 24. september og vonumst við til þess að hann verði líflegur og skemmtilegur. Vegna rýmingar húsnæðisins er þeim sem þar eiga muni bent á að taka þá við lok markaðarins næsta laugardag. Þeir sem eiga muni og ætla ekki að vera með bás geta sótt þá á meðan markaðurinn er opinn. Þó svo að starfsemin hætti í Hornabæ heldur markaðstorgið engu að síður áfram að lifa og vinna að markmiði sínu sem er að veita frumkvöðlum, handverksfólki og bændum aðstöðu til að selja og kynna framleiðslu sína og stuðla að endurnýtingu hluta og muna. Markaðstorg Hornafjarðar er ekki rekið með hagnaðarsjónamið í huga heldur til að stuðla að frumkvöðlastarfi og atvinnuuppbyggingu í Hornafirði.

Aðstandendur Markaðstorgsins vildu koma á framfæri þakklæti til þeirra sem hafa komið að Markaðstorginu og þakka þau öllum fyrir samveruna í Hornabæ og sérstaklega vildu þau þakka Landsbanka Íslands og Björgúlfi fyrir velvilja í
þeirra garð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica