September
1500 fuglar merktir af starfsmönnum Fuglaathugunarstöðvarinnar
fuglar.is
Í morgun var 1000. skógarþrösturinn og 500. þúfutittlingurinn merktur af starfsmönnum Fuglaathugunarstöðavar Suðausturlands frá því merkingar hófust í vor þann 20. mars. Nú er búið að merkja rúmlega 2300 fugla á vegum starfsmanna stöðvarinnar auk skógarþrasta og þúfutittlinga eru það helst 609 kríur, 58 steindeplar og 51 maríuerla. Alls hafa verið merktar 26 tegundir, í morgun náðist t.d. fyrsti smyrillinn. Töluvert hefur komið af merktum fuglum í netin og hafa þeir allir verið merktir í Einarslundi utan einn þúfutittlingur sem merktur var í Belgíu.
Nokkrir skógarþrestir hafa náðst sem merktir voru 2003 og 2004.





Skrifa athugasemd