September
Unglingalandsmót UMFÍ í Vík í Mýrdal
Unglingalandsmót UMFÍ í Vík í Mýrdal
Unglingalandsmót UMFÍ í Vík í Mýrdal (Myndasafn RE:USÚ)

15.09.2005 September

Starfshópur skipaður vegna framkvæmda í tengslum við landsmót

Búið er að skipa starfshóp vegna framkvæmda í Sveitarfélaginu Hornafirði í tengslum við fyrirhugað unglingalandsmót sem haldið verður á Hornafirði 2007. Gert er ráð fyrir að þessi starfshópur greini þörf og geri tillögu um uppbyggingu mannvirkja í tengslum við landsmóts sem síðar verða tekin fyrir í bæjarráði og bæjarstjórn í tengslum við fjárhagsáætlun. Í hópnum verður m.a. rætt um möguleika á uppbyggingu tjaldstæða, sundlaugar, frjálsíþróttaaðstöðu, fótboltavalla o.fl. Eftirtaldir skipa hópinn: Formaður hópsins Albert Eymundsson bæjarstjóri, Helgi Már Pálsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs, Haukur Helgi Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundaráði, Þórgunnur Torfadóttir fulltrúi í æskulýðs og tómstundaráði og Ragnhildur Einarsdóttir formaður USÚ.


Starfshópurinn mun taka til starfa í næstu viku.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica