Þurfum að fá punkta og tillögur frá sem flestum
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra Valgerður Sverrisdóttir skipaði á dögunum verkefnastjórn til að annast gerð vaxtasamnings fyrir Austurland sem hefur það hlutverk að móta stefnu í byggðarmálum. Fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð sitja í verkefnastjórninni þau Elín Magnúsdóttir, Gísli Már Vilhjálmsson og Albert Eymundsson. Gísli Már sagði í viðtali við vefinn að vinna við þetta verkefni væri að hefjast og verið væri að senda út fundarboð í sambandi við ferðaklasann þar sem byrjað verður á að skoða hvaða leið verður farin. Þetta verkefni nær til allra sem í sveitarfélaginu búa og við þurfum að fá punkta og tillögur frá sem flestum. Ég lít á vaxtasamninginn sem viðurkenningu á því starfi sem farið hefur fram á þessu klasadæmi sem unnið hefur verið að hér í Nýheimum og er mikill áhugi á hjá fólki.
Við þurfum að finna og sjá tækifærin, koma þeim niður á blað og fá síðan aðstoð sérfræðinga til að koma þeim áfram. Við fáum ekki peninga til að gera bara eitthvað heldur verðum við að skapa eitthvað raunhæft og það er allt til og hægt ef við íbúarnir tökum höndum saman og tökum á málunum.
Búið er að stofna tvo klasa sem eru matvæla- og ferðaklasi. Meginmarkmið í ferðaklasanum er að stofna markaðsapparat segir Gísli, svo á eftir að koma í ljós hvort við hoppum inn í eitthvað sem er til og er öflugt nú þegar, sú vinna er nú að hefjast.
Einnig er í umræðunni hvaða leið verður farin en þessi klasi á m.a. að fjalla um fjölgun opinberra starfa hér á svæðinu og aukin rannsóknartækifæri, þau eru t.d, okkar sérstæða náttúra, jökullinn, fiskurinn, ýmsar skóladeildir s.s. ferðamálaskóli , náttúruskóli o.fl. efling þjóðgarðsins, nýsköpun í landbúnaði og hvað við getum gert í sambandi við stóriðju.Einn þátturinn í þessu eru samgöngumál og á þeim þurfum við að taka bæði hvað varða samgöngur á landi og í lofti einkum þarf að auka flugsamgöngur og bæta aðstöðu á Hornafjarðarflugvelli
Þetta eru bara nokkur dæmi um þá mörgu möguleika sem eru hér til staðar og nú er lag til að taka á málunum til að efla og auka hag íbúa þessa sveitarfélags.
Þessi vaxtasamningur er frábært tækifæri til að ýta af stað og ná fram nýjum hugmyndum og einnig þeim gömlu líka . Verkefnastjórnin fær 6-8 mánuði til að vinna að og skila skýrslu um verkefnið.





Skrifa athugasemd