September
Nýtt nemendaráð í FAS 2005
Nýtt nemendaráð í FAS 2005
Nýtt nemendaráð í FAS 2005 (@ FAS)

12.09.2005 September

Nýtt nemendaráð kosið í FAS

Fréttatilkynning FAS

Föstudaginn 9. sept. fóru fram kosningar í nemendaráð Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu. Ríflega 100 nemendur voru á kjörskrá og var kjörsókn 71%. Tveir atkvæðaseðlar voru ógildir. Alls voru 10 nemendur í framboði en í nemendaráði sitja 5 fulltrúar. Þeir sem hlutu kosningu eru: Elvar Bragi Kristjónsson, Emil Örn Morávek Jóhannsson, Ingibjörg Lilja Pálmadóttir, Viktor Ragnar Þorvaldsson og Þóra Sigríður Guðmundsdóttir. Við óskum þeim til hamingju.

Birgir Fannar Reynisson er verðandi framkvæmdarstjóri nemendaráðs. Hann kemur til með að hafa aðstöðu á skriftstofu nemendaráðs.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica