September
Leiknir Sindri Fáskr
Leiknir Sindri Fáskr

09.09.2005 September

Sindramenn komnir í 2. deild

Eftir frábæran 1 ? 0 sigur á Fáskrúðsfirði gegn Leikni á þriðjudaginn er Sindri kominn í 2. deild. Það var Kristinn Þór Guðlaugsson sem skoraði mark Sindra seint í fyrri hálfleik. Hann prjónaði sig framhjá öllum varnarmönnum Leiknis og markverðinum eftir frábæra hnésendingu frá Steinari. Þetta er sannarlega glæsilegt hjá strákunum enda höfðu ekki margir trú á því að þetta myndi gerast í upphafi tímabils og fyrstu þrír leikir sumarsins voru ekki til þess fallnir að skapa bjartsýni. Strákarnir sýndu hins vegar ótrúlegan vilja og seiglu eftir því sem leið á mótið og í mörgum leikjum voru þeir hreinlega að spila mjög vel. Leiðin í gegnum úrslitakeppnina var sannarlega ekki auðveld þar sem Sindri lenti í tveimur mjög erfiðum liðum, þ.e. Víði og Leikni. Báðar viðureignirnar einkenndust af mikilli baráttu og jöfnum leikjum. Það segir kannski meira en mörg orð að Sindri kemst í gegnum fjórðungs ? og undanúrslitin með markatöluna 3 ? 1. Á þessu sést hversu jafnar viðureignirnar hafa verið. Óhætt er að minnast á þátt varnarmannanna Gunnars Auðuns Jóhannssonar og Jóns Hauks Haraldssonar sem hafa spilað frábærlega fyrir liðið í úrslitakeppninni en allt liðið hefur auðvitað spilað mjög vel í úrslitakeppninni.

Knattspyrnudeildin og meistaraflokkur karla vill koma á framfæri þakklæti til bæjarbúa sem fylktu sér á bak við liðið þegar mest á reyndi. Gaman var að sjá þann fjölda sem mætti á Sindravelli til að fylgjast með viðureigninni við Leikni. Ekki var minna gaman að sjá þann fjölda Hornfirðinga sem fylgdi liðinu austur á Fáskrúðsfjörð til þess að hvetja liðið til sigurs þar. Ljóst er að þessi góði stuðningur hafði gríðarlega góð áhrif á liðið og menn voru tilbúnir að leggja sig alla fram. Einnig vill knattspyrnudeildin og meistaraflokkur karla koma á framfæri þakklæti til Landsbankans og Hótels Hafnar sem studdu okkur í þessari úrslitabaráttu með því að bjóða bæjarbúum á heimaleikina.
Síðasta verkefni sumarsins er síðan úrslitaleikur við Reyni Sandgerði sem fram fer nk. laugardag að öllum líkindum á Reykjavíkursvæðinu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica