September
Humar í Papós
Humar í Papós
Humarvinnsla í Papós (úr myndasafni)

06.09.2005 September

Hátt í 100 manns vantar til starfa í Sveitarfélaginu

Mikill skortur er á fólki til starfa á Hornafirði og á það við bæði til sjós og lands við margskonar störf. Atvinnurekendur segja erfitt að fá fólk til starfa og nánast enginn á lausu á staðnum. Þorkell Kolbeins hjá Stéttarfélaginu Vökli segir að innan við tíu manns hafi verið á atvinnuleysisskrá undanfarið og það sé aðallega fólk sem er að skipta um störf sem skrái sig þegar bil myndast á milli starfa. Eftir því sem næst verður komist má áætla að hátt í hundrað manns vanti til starfa hér á svæðinu. Til upplýsinga fyrir þá sem eru í atvinnuleit er Hornafjörður einn fegursti staður landsins þar sem veðursæld er mikil allt árið, heilbrigðisþjónusta mjög góð,leikskólar,skólar til staðar og allt það sem til þarf til að fjölskyldu geti liðið vel. Einnig má benda á að ómældir möguleikar eru fyrir þá sem vilja njóta útivistar allt árið.

Þó erfiðlega gangi að fá fólk og líkur á að leita þurfi út fyrir landsteinana eftir því ríkir bjartsýni hjá atvinnurekendum og mikill áhugi á uppbyggingu á staðnum ekki síst í ferðamannaþjónustunni og er unnið að nýjum þáttum til að auka vetrarstarfsemi hennar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica