Jafntefli í hörkuleik!
Sindri og Leiknir Fáskrúðsfirði gerðu 0 ? 0 jafntefli í fyrri leik liðanna í undanúrslitum 3. deildarinnar sem fram fór síðastliðinn laugardag á Sindravöllum. Þetta var hörkuleikur þar sem hvorugt lið var tilbúið að gefa þumlung eftir í baráttunni enda mikið í húfi. Sindramenn voru þó nokkuð sterkari í fyrri hálfleik en nokkuð fjaraði undan leik þeirra eftir því sem leið á leikinn og Leiknismönnum óx ásmegin. Það gekk ekki nógu vel hjá Sindra að ógna marki Leiknismanna og tókst þess vegna ekki að skapa nein afgerandi færi. Ekki er þó öll nótt úti enn. Sama staða var fyrir seinni leikinn á móti Víði sem fram fór í Garðinum, þ.e. að strákarnir gerðu jafntefli á heimavelli í fyrri leiknum. Þeir gerðu sér hins vegar lítið fyrir í þeirri viðureign og unnu seinni leikinn á útivelli. Ekkert mælir gegn því að hægt verði að framkvæma sama leikinn þriðjudaginn þegar spilað verður á Fáskrúðsfirði.
Nauðsynlegt er að minnast á þátt áhorfenda á laugardaginn. Þeir fjölmenntu á Sindravelli og gaman var að sjá áhorfendapallana svona þétt setna. Óhætt er að fullyrða að aldrei hefur verið jafn vel mætt á völlinn hjá Sindra í sumar. Knattspyrnudeildin og strákarnir í meistaraflokki kunna bæjarbúum bestu þakkir fyrir að sýna stuðning sinn í verki og mæta á völlinn og styðja við bakið á þeim. Einnig vill knattspyrnudeild Sindra þakka höfðingjunum á Hótel Höfn fyrir veittan stuðning en þeir buðu bæjarbúum frítt á völlinn. Það er gaman og gott til þess að vita að fyrirtæki bæjarins eru tilbúin að styðja við bakið á starfi knattspyrnudeildarinnar með þessum hætti.
Að lokum vill knattspyrnudeildin hvetja alla áhugasama Hornafirðinga til þess að drífa sig nú austur á Fáskrúðsfjörð nk. þriðjudag til þess að styðja við bakið á strákunum í úrslitarimmunni. Það væri virkilega gaman að sjá hornfirsk andlit í stúkunni á þriðjudaginn. Leikurinn hefst kl. 17:30 á Fáskrúðsfjarðarvelli.
Áfram Sindri




Skrifa athugasemd