September
Veðurblíða í september
Veðurblíða í september

05.09.2005 September

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra heimsækir Hornafjörð

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sótti Hornfirðinga heim miðvikudaginn 31. ágúst. Valgerður nýtti tímann vel og m.a. hitti hún grunnskólabörn, leit við á Jöklasýningu og heimsótti ferðaþjónustubæi. Megin ástæða heimsóknar ráðherrans var þó sú að setja á fót verkefnisstjórn til að annast gerð Vaxtarsamnings fyrir Austurlands. Verkefnisstjórnin hefur það hlutverk að móta stefnu í byggðamálum fyrir Austurland til að treysta samkeppnishæfni og vöxt svæðisins. Vaxtarsamningur eins og nú er verið að ýta úr vör er góð leið til þess að átta sig á stöðu í atvinnulífi í Austurlandsfjórðungi og horfa til framtíðar með eflingu atvinnulífs í huga. Í vinnu verkefnisstjórnarinnar verður sérstaklega tekið mið þörfum jaðarsvæða á Austurlandi, s.s. Hornafjarðarsvæðinu en jafnframt að stefna að auknum hagvexti á svæðinu, fjölgun atvinnutækifæra og treysta byggðakjarna.

Í verkefnisstjórninni sitja: Baldur Pétursson, deildarstjóri, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, sem jafnframt gegnir formennsku, Elín Magnúsdóttir formaður bæjarráðs Höfn, Albert Eymundsson bæjarstjóri Höfn, Björn Hafþór Guðmundsson sveitarstjóri Djúpavogi, Eiríkur B. Björgvinsson bæjarstjóri Fljótsdalshéraði, Guðný Björg Hauksdóttir bæjarfulltrúi Fjarðabyggð, Þorsteinn Steinsson sveitarstjóri Vopnafirði, Þorvaldur Jóhannsson framkvæmdastjóri SSA, Hrönn Pétursdóttir, starfsmanna- og kynningarstjóri ALCOA, Óskar Garðarsson, fjármálastjóri Eskju hf, Eskifirði, Gísli Már Vilhjálmsson, hótelstjóri, Höfn, Halldór V. Kristjánsson, sérfræðingur, Byggðastofnun. Með nefndinni munu einnig starfa Stefán Stefánsson og Kristbjörg Jónasdóttir frá Atvinnuþróunarstofu Austurlands.

Í tilefni af stofnun verkefnisstjórnarinnar stóð Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið, Sveitarfélagið Hornafjörður og Samtök sveitarfélaga á Austurlandi að málþingi um byggðaþróun og samkeppnishæfni á Austurlandi. Málþingið var vel sótt og líflegar umræður sköpuðust í kjölfar framsöguerinda. Ræddu fundarmenn um málefni sem taka þarf til umræðu í vinnu nefndarinnar, t.d. áherslur á atvinnuuppbyggingu sem byggir á styrkleika svæðisins, hvernig hægt sé að efla nýsköpun, rannsóknir og þróun á Austurlandi og stuðning við nýbúa.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica