Mesti fjöldi nemenda 25 ára eða yngri í sögu skólans
Föstudaginn 2. september fór fram busavígsla í skólanum. Busum voru kynntar ýmsar reglur hvað varðar hegðun og klæðnað sem voru í gildi þar til vígslu lauk um hádegið á föstudag og þá eru busar orðnir fullgildir nemendur. Alls eru nemendur á fyrsta ári 32 og þar af eru tveir skiptinemar, strákur frá Tælandi og stelpa frá Sviss. Heildarfjöldi nemenda við skólann er um 230. Þar af eru um 30 í kvöldskóla, 90 fjarnemendur og um 110 í dagskóla. Í kvöldskólanum verður leiðsögunám, skipstjórnanám, skrifstofubraut og danska. Fjarnemendur eru af þrennum toga. Í fyrsta lagi nemendur í íslensku og landafræði frá Menntaskólanum á Egilsstöðum. Í öðru lagi nemendur í 30 brl. skipstjórnarnámi og í þriðja lagi fjarnemendur sem eru í þriðja- og fjórðaárs áföngum á stúdentsbrautum.
Af 110 dagskólanemendum eru um 100 fæddir 1980 eða seinna sem er sennilega mesti fjöldi nemenda 25 ára eða yngri í sögu skólans, enda hefur þurft að grípa til þess ráðs að kaupa fleiri borð og stóla til að koma öllum fyrir.




Skrifa athugasemd