Stórleikur á laugardaginn
Frítt á völlinn í boði Hótels Hafnar
Nú um helgina, laugardaginn 3.sept. fer fram stórleikur ársins á Sindravöllum. Um er að ræða fyrri leik Sindra og Leiknis Fáskrúðsfirði í tveggja leikja rimmu þeirra þar sem barist er um laust sæti í 2. deild á næsta ári. Það er því til mikils að vinna fyrir bæði lið og ljóst að þau munu berjast þar til yfir lýkur. Bæði liðin lentu í öðru sæti í sínum riðlum 3.deildarinnar þannig að það er mjög góður árangur hjá þeim að ná í undanúrslitin. Sindramenn hafa verið að spila mjög vel að undanförnu og eru til alls líklegir. Skemmst er að minnast glæsts sigurs þeirra í Garðinum þriðjudaginn var. Það er ekki á færi allra að fara í Garðinn og sækja sigur. Líkt og fyrri leik fjórðungsúrslitanna þá hefur hornfirskt fyrirtæki gengið í lið með okkur. Í síðasta leik var það Landsbankinn á Hornafirði sem gerðist svo höfðinglegur að bjóða bæjarbúum frítt á völlinn.
Að þessu sinni eru það höfðingjarnir á Hótel Höfn sem ætla að ganga í lið með okkur og bjóða frítt á völlinn. Þetta er sérlega vel boðið og kann knattspyrnudeild Sindra þeim bestu þakkir fyrir. Nú má segja að boltinn sé hjá Hornfirðingum sjálfum og hvetur knattspyrnudeildin fólk til að fjölmenna á völlinn og sýna stuðning sinn í verki.





Skrifa athugasemd