Jóna Eðvalds, skip Skinneyjar Þinganess, landaði á Hornafirði í gær 250 tonnum af síld sem fékkst í einu kasti á ,,Gauraslóðinni’’ 12 mílum suðaustan við Papey. Fyrstu síldina á þessu hausti 40 tonn, fékk Jóna Eðvalds 20.sept. Sverrir Aðalsteinsson sagði að þetta væri góð síld sem færi í frystingu. Ásgrímur Halldórsson SF kemur til veiða fyrir Skinney Þinganes núna um helgina og fer fljótlega á síldveiðar einnig er á næstunni von á síldveiðiskipinu Áskeli sem veiðir fyrir Skinney Þinganes. Sverrir sagði að enn vantaði fólk til vinnu og beiðni lægi inni hjá útlendingastofnun um leyfi fyrir sjö manns. Við eigum von á Svíum og erum að sækja um atvinnuleyfi fyrir fólk frá Filippseyjum, Braselíu, Póllandi og Bosníu-Hersegóníu. Margir erlendir starfsmenn eru í vinnu hjá okkur og þetta eru góðir og duglegir starfsmenn.
Lesa meira