Ríki Vatnajökuls - Ágúst
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Alls verður slátrað um 600 dilkum
      <description>Sumarslátrun dilka hófst í sláturhúsi Norðlenska á  Höfn í síðustu viku. Alls verður slátrað um 600 dilkum úr Suðursveit, Álftafirði og Breiðdal. Einar Karlsson sláturhússtjóri segir að dilkarnir séu vænir og meðalvigt  þeirra 150 sem búið er að slátra vera 14.7 kg sem sé mjög gott miðað við sumarslátrun. Allt kjöt frá sl. hausti hjá afurðasölu Norðlenska á Höfn er uppselt og nú geta þeir sem áhuga hafa á að fá sér nýtt, ferskt eða frosið lambakjöt keypt heila skrokka í sláturhúsinu. Aðeins sex manns hafa starfað við slátrunina núna og ástæðuna fyrir því að svo fáliðað sé segir Einar einfaldlega vera þá að það sé ekkert fólk að fá til starfa.</description>
Sindramenn komnir í undanúrslitin!!!
      <description>Eftir frábæran sigur á Víði úr Garði eru strákarnir í meistaraflokki komnir í undanúrslit 3. deildarinnar. Sindramenn komust yfir strax á 3. mínútu leiksins með marki frá Seval beint úr aukaspyrnu. Þessa forystu létu strákarnir ekki af hendi og leikurinn endaði 1-0. Sannarlega frábær úrslit og voru Víðismenn að tapa sínum fyrsta leik í sumar. Viðureignin endaði því 2-1 Sindra í vil þar sem fyrri leikur liðanna á Sindravöllum endaði 1-1 og baráttan heldur því áfram hjá Sindra en Víðir er úr leik.</description>
Starfsemi Kvennakórs Hornafjarðar hefst á ný
      <description>Nú þegar skólarnir eru byrjaðir og tilveran farin að færast í haustbúninginn byrja félagasamtök starfsemi sína eftir góða hvíld í sumar. Kvennakór Hornafjarðar byrjar sína starfsemi á aðalfundi sem haldinn verður n.k. föstudag. Síðasta vetur var mikill kraftur í starfsemi kórsins og hélt hann jólatónleika fyrir fullu húsi í Nýheimum, tónleika með hljómsveitinni Barducca í vor og fór á Kvennakóramót svo eitthvað sé nefnt. Um fjörutíu konur æfðu með kórnum í fyrra undir stjórn Sigjóns Bjarnasonar, og vonum við að enn fleiri verði með í vetur og eru allar konur sem áhuga hafa á söng og skemmtilegu félagsstarfi hjartanlega velkomnar. Æfingar eru öll miðvikudagskvöld frá kl. 20.15 til kl. 22.15 og einnig hafa raddirnar hist í 40.mín á laugardagsmorgnum.</description>
Í jöklanna skjóli
      <description>Þjóðminjasafn Íslands og Kvikmyndasjóður Skaftfellinga hafa tekið höndum saman um að sýna heimildakvikmyndina Í jöklanna skjóli sem Vigfús Sigurgeirsson ljósmyndari tók á árunum 1952-1954 í Skaftafellssýslum. Skýringartexta samdi Jón Aðalsteinn Jónsson og er hann jafnframt flytjandi textans. Kvikmyndin er í all mörgum þáttum og verða tveir til þrír þættir sýndir hverju sinni. Kvikmyndin verður sýnd í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands við Suðurgötu fyrsta fimmtudag hvers mánaðar næstu fjóra mánuði og verður fyrsti hlutinn sýndur fimmtudaginn 1. september kl. 17:00.</description>
Lítil skóflustunga getur orðið að nýrri sundlaug
      <description>Áður en síðasti fundur Bæjarráðs Hornafjarðar hófst afhenti hópur bæjarbúa áskorun til bæjarstjórnar um byggingu á nýrri sundlaug í tengslum við fyrirhugað unglingalandsmót sem haldið verður á Hornafirði 2007. Áskorunin er rituð á listaverk eftir Sverrir Sveinbjörnsson, sem er skófla út stáli fest á gabbróstein. Á listaverkið er ritað: Lítil skóflustunga getur orðið að nýrri sundlaug fyrir unglingalandsmótið 2007, ungdómnum og íbúum til vegs og virðingar. Látum ekki tækifærið framhjá okkur fara.</description>
      <alt>Áskorun</alt>
Kynningarfundur á Hótel Höfn um byggðaþróun og samkeppni
      <description>Á morgun miðvikudaginn 31.ágúst verður haldinn kynningarfundur á Hótel Höfn um byggðaþróun og samkeppni á Austurlandi. Á fundunum mun Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra fjalla um áherslur í byggðarmálum og vaxtasamninginn. Auk hennar mun Baldur Pétursson frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu fjalla um vaxtasamninginn, undirbúning hans og áherslur. Albert Eymundsson bæjarstjóri mun fjalla um atvinnumál í Sveitarfélaginu. Þorvaldur Jóhannsson framkvæmdarstjóri SSA og Stefán Stefánsson frá Þróunarstofu Austurlands munu fjalla um atvinnumál á Austurlandi og aukið samstarf.  Sævar Kristinsson, frá Netspor mun fjalla um klasa og samkeppnishæfi.</description>
Jafntefli við Víði úr Garði
      <description>Í fyrsta leik sínum um laust sæti í 2. deild að ári gerðu strákarnir í meistaraflokki 1-1 jafntefli við Víði úr Garði. Leikurinn fór fram á Sindravöllum í blíðskaparveðri ef frá er skilið rokið og kuldinn. Skemmst er frá því að segja að Sindrastrákar voru mun betri aðilinn í leiknum, sköpuðu sér fjölda marktækifæra og misnotuðu m.a. vítaspyrnu. Seval Zahirovic skoraði mark Sindra úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á honum á 29. mínútu fyrri hálfleiks og þar við sat í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik var aftur brotið Seval innan teigs og Sindramenn fengu aðra vítaspyrnu en í þetta sinn brást Seval bogalistin. Það var síðan gegn gangi leiksins sem Víðismenn jöfnuðu leikinn á 68. mínútu með skallamarki. Seinni leikur Sindra og Víðis fer fram í Garðinum næsta þriðjudag og það er klárt að strákarnir munu selja sig dýrt þar til þess að freista þess að komast áfram í 4 liða úrslitin. Ekki er öll nótt úti enn þótt ekki hafi náðst sigur í heimaleiknum því Sindrastrákarnir hafa oft sýnt það og sannað að þeir eru bestir þegar á móti blæs.</description>
Tvö golfmót á Silfurnesvelli um helgina
      <description>Það var mikið um að vera á Silfurnesvelli um helgina en þar fóru fram tvö golfmót. Á laugardag  var spilað Landsbankamótið og á sunnudaginn fór fram Hafnarmótið. Á Landsbankamótinu var keppt í tveimur flokkum, kvenna og karla og gaf Landsbanki Íslands verðlaunin ásamt því að styrkja klúbbinn myndarlega. Forráðamenn golfklúbbsins vildu senda Landsbankanum og þeim aðilum sem styrktu Hafnarmótið bestu þakkir fyrir. 30 kylfingar tóku þátt í Hafnarmótinu sem fór fram á sunnudeginum. Þar  var einnig var keppt í unglingaflokki. Þau fyrirtæki sem styrktu Hafnarmótið voru Olís, Opin kerfi, Krónan,  Lónið, Smyrlabjörg, Árnanes, Húsgagnaval, Lyfja, TM, Nanný og Kaffi Hornið.</description>
Dæluskipið Skandía að störfum í Hornafjarðarósi
      <description>Í síðustu viku var búið að dæla upp 10 þús. rúmmetrum af sandi úr rennunni í Hornafjarðarósi með dæluskipinu Skandía. Byrjað var á dælingu 11.ágúst og gekk verkið vel fyrstu dagana en undanfarið hefur sjólag ekki verið hagstætt en ölduhæð má ekki vera meiri en einn metir til að dæluskipið geti athafnað sig. Alls verður dælt 45 þús.rúmm.af sandi úr rennunni og á þá að vera greið leið fyrir hlaðin síldar og loðnuskip inn um ósinn. Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur segir að hægt væri að ljúka verkinu á tíu dögum ef vel viðrar. Það tekur eina og hálfa klst. að dæla sandi í skipið og losa það. Vonast er til að verkinu verði lokið fyrir síldarvertíðina sem hefst í byrjun september. Verktaki við dýpkun rennunnar er Gáma og Tækjaleiga Austurlands.</description>
Landsbankinn býður á völlinn!!!
      <description>Eftir dapra byrjun í vor hafa strákarnir í meistarflokki Sindra aldeilis spýtt í lófana og í næst síðustu umferð B – riðils 3. deildarinnar tryggðu þeir sér sæti í úrslitakeppninni. Um síðustu helgi spiluðu þeir síðan við Ægi frá Þorlákshöfn og unnu mjög sannfærandi 6 – 0 sigur. Eftir þann leik varð ljóst að Sindri mætir Víði úr Garði í 
|nl|8-liða úrslitum. Leikið verður heima og að heiman. Fyrri leikurinn fer fram á Sindravöllum á laugardaginn en seinni leikurinn verður í Garðinum þriðjudaginn 30. ágúst. Það lið sem vinnur samanlagt þessa tvo leiki fer áfram í 4-liða úrslit og þar verður barist um sæti í 2. deildinni að ári liðnu.</description>
Fjórði flokkur kvenna náði þriðja sætinu
      <description>Um síðastliðna helgi tóku þrír yngri flokkar frá Sindra þátt úrslitum Íslandsmótsins í knattspyrnu. Fimmti flokkur kvenna tók stefnuna á Akranes, fimmti flokkur karla skaust norður á Akureyri og fjórði flokkur kvenna fór í gegnum Akureyri og endaði á Ólafsfirði. Það er að sjálfsögðu óþarfi að taka það fram en það er auðvitað frábær árangur hjá þessum flokkum að komast í úrslitin í sínum mótum. Óhætt er að segja að allir flokkarnir hafi staðið sig frábærlega vel um helgina og áttu í fullu tré við mörg gríðarsterk félög. Einnig er mikilvægt að taka það fram að iðkendur Sindra voru félaginu sínu til sóma innan vallar sem utan.</description>
Ungir athafnamenn við bryggjusmíði
      <description>Nokkrir efnilegir athafnamenn, þeir Gísli, Þorgils, Sævar, Alexander og Helgi Ernir notuðu síðustu dagana áður en skólinn byrjaði til að ljúka við bryggju sem þeir hafa verið að smíða við bakkann framan við Júllatúnið. Búið var að koma á flot traustlegum fleka, aðeins eftir að setja stefni á hann og sögðu strákarnir að þetta væri ágætis fleyta og fínt að sigla honum. Að sjálfsögðu sögðust þeir vera í björgunarvestum þegar farið væri eitthvað á flekanum, það er enginn almennilegur sjómaður eða veiðimaður sem ekki hefur öryggismálin í lagi.
|nl|Strákarnir sögðu að það væri alveg rosalega gaman að vinna við bryggjuna,útvega efni, smíða og bara allt sem til þarf til svona framkvæmda.</description>
Besta sumarið í sjö ár í Skaftafelli
      <description>Þetta er besta sumarið í sjö ár, sagði Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörður þegar hann var spurður hvernig sumarið hefði verið í Skaftafelli. Það hefur verið rólegt hvað stórframkvæmdir varðar og því betur hægt að hlú að því sem lagfæra þurfti og það hefur gengið mjög vel og við höfum verið með alveg prýðis starfsfólk. Um 150 sjálfboðaliðar hafa komið og starfað tímabundið í Skaftafelli í sumar. Unnið hefur verið við viðhald göngustíga en þeir eru bæði margir og langir, einnig hefur verið unnið við gömlu réttina í Skaftafelli og vonast er til að uppbyggingu hennar ljúki næsta sumar. Ragnar segir að 50% af  allri svona sjálfboðavinnu á öllu landinu sé unnin í Þjóðgarðinum í Skaftafelli og ástæðan sé m.a. sú að þar séu fjölbreyttustu verkefnin og aðstæður bestar. Sumarstarfsemin hjá okkur  hér í Skaftafelli er þáttur í alþjóðlegri starfsemi þar sem þetta fólk sem hingað kemur til sjálfboðastarfa er frá fjölda landa um allan heim og er því mjög góð landkynning. Margt af þessu fólki hefur síðan heimsótt Ísland og komið í Skaftafell og farið um þá staði þar sem þeir unnu í sinni sjálfboðavinnu.</description>
Rokk í 50 ár á Hótel Höfn
      <description>Þrátt fyrir að enn sé nokkuð eftir af sumarumferðinni þá er byrjað á undirbúningi fyrir vetrarstarfsemina á Hótel Höfn segir Óðinn Eymundsson einn eigenda Hótels Hafnar. Fyrst ber þar að nefna Norðurljósaverkefnið, sem er tenging norðurljósa við ferðaþjónustuna og segir Óðinn það spennandi verkefni og eina af björtustu vonum ferðaþjónustunnar yfir vetrartímann. Eins og undanfarin ár þá tekur hótelið þátt ásamt Skemmtifélaginu í skemmtidagskrá sem sett er upp hér á Höfn með það að markmiði að skemmta heimamönnum og fá hingað gesti í helgargistingu. Að þessu sinni mun verða tekið fyrir Rokk í 50 ár sem er rjóminn af rokkinu s.l. 50 ár og nýtur Skemmtifélagið aðstoðar rokkdrottningarinnar Andreu Jónsdóttur.</description>
      <alt>Óðinn Eymundsson</alt>
Jeppa og gönguferð í Vöðlavík, Viðfjörð og Hellisfjörð
      <description>Ferðafélag Austur-Skaftafellssýslu stóð fyrir jeppa-og gönguferð í Vöðlavík,Viðfjörð og Hellisfjörð dagana 15.-17. júlí. Þátttakendur voru 18, sá elsti áttatíu ára alveg eldhress og sá yngsti tíu ára. Fararstjóri var Ragna Pétursdóttir sem einnig sá um skipulagningu ferðarinnar. Fyrsti áfangi ferðarinnar á föstudeginum var Vöðlavík þar sem gist var í  skála  Ferðafélags Fjarðarmanna og sumir voru í sinum hjól-og fellihýsum. Þegar allir voru mættir á staðinn og búnir að koma sér fyrir var farið í kvöldgöngu um nágrennið og kíkt á fólkið í  Vöðlavík. Á laugardaginn var haldið yfir í Viðfjörð og gengið út Barðsnesið út að Barðsnesgerði, gengið í 3-4 tíma, síðan keyrt til baka í Vöðlavík, sumir keyrðu upp á Sanda og horfðu yfir Ýmadal og um kvöldið var grillað og farið í kvöldgöngu um svæðið.</description>
Stór helgi í knattspyrnunni
      <description>Þessa helgi munu þrír yngri flokkar hjá knd. Sindra taka þátt í úrslitakeppnum knattspyrnusambands Íslands. Þeir flokkar sem um ræðir eru 5. flokkur karla og kvenna og 4. flokkur kvenna. Tveir flokkar keppa fyrir norðan en það eru 5. flokkur karla sem keppir á Akureyri og 4. flokkur kvenna sem keppir á Ólafsfirði. 5. flokkur kvenna keppir hins vegar á Akranesi. Það er frábær árangur hjá þessum flokkum að vinna sína riðla og komast í úrslitakeppnina og etja kappi við þá bestu á landinu. Hér er að sjálfsögðu um gríðarlega mikil ferðalög að ræða fyrir fjölda iðkenda og það hefur verið mikið púsluspil að koma þessu heim og saman. En með samstilltu átaki foreldra og knd. Sindra hafðist það að lokum. Það verður gaman að sjá hvernig flokkunum okkar kemur til með að ganga í úrslitunum og vonum við að sjálfsögðu að þeir komi heim með sem flesta sigra. Aðalmálið er þó alltaf að allir skemmti sér sem best og að krakkarnir njóti samverunnar. Óneitanlega er þó gaman til þess að vita að á bilinu 40 – 50 iðkendur á vegum Sindra eru að taka þátt í úrslitakeppni KSÍ.</description>
Sumarstarfi sunddeildar Sindra lokið
      <description>Sumarstarfi sunddeildarinnar Sindra lauk í gær með sundmóti og pizzaveislu á eftir.  Keppendur stóðu sig vel og létu rok og rigningu ekki spilla keppnisgleðinni.  Þess má m.a. geta að sex boðsundslið kepptu á  mótinu.  Til stóð að grilla meðan á verðlaunaafhendingu stæði en vegna rigningar var leitað skjóls í Hafnarskóla og pantaðar pizzur þangað.  Mikil gróska hefur verið í sunddeildinni á síðustu misserum og æfðu um 40 krakkar sund í sumar.  Auk þess var fullt á þau 3 námskeið sem í boði voru fyrir 4-5 ára börn í júní og fram í júlí, en 10 komust á hvert námskeið.    Farið var á sumarhátíð ÚÍA í sumar auk þess sem nokkrir sundiðkendur kepptu í sundi á Unglingalandsmótinu í Vík.  Sundþjálfari í sumar var Barbara Dröfn Fischer sem snýr sér að íþróttakennslu í höfuðborginni í vetur.</description>
Þórgunnur Torfadóttir skólastjóri við Hafnarskóla
      <description>Kennarar í Hafnarskóla eru komnir til starfa og farnir að undirbúa vetrarstarfið. Við skólann starfa 19 kennarar auk 8 annarra starfsmanna.  Þórgunnur Torfadóttir er nýráðinn skólastjóri  við Hafnarskóla en hún hefur verið aðstoðarskólastjóri þar síðan 1998. Eygló Illugadóttir sem er nýr aðstoðarskólastjóri við skólann er líka öllum hnútum kunnug.  Hefur starfað þar síðan 1989.  Arnbjörg Stefánsdóttir sem hefur verið skólastjóri síðastliðin 5 ár flutti sig um set og hefur tekið við stöðu aðstoðarskólastjóra við Brekkubæjarskóla á Akranesi. Á morgun, miðvikudag, munu kennarar Hafnar- og Nesjaskóla vera á námskeiði hjá Jóhanni Inga Gunnarssyni sálfræðingi sem heitir Samskipti og liðsheild.  Á mánudag munu svo kennarar Hafnarskóla sitja námskeið í Stundvísi að lokinni skólasetningu.</description>
Skólinn fer að byrja
      <description>Nú fara skólarnir að byrja og krakkarnir byrjaðir að dusta rykið af skólatöskunni og gera allt klárt. Skólavörurnar eru komnar fyrir nokkru í 1011 í Miðbæ og margir byrjaðir að versla inn skóladótið. Grunnskólarnir hafa gefið út innkaupalista sem hægt er að nálgast hér á vefnum. Næstkomandi mánudag 22. ágúst verða skólasetningar í Nesjaskóla, Hafnarskóla, Heppuskóla og Grunnskólanum Hofgarði. Kennsla mun síðan hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 23. ágúst. Skólabílarnir aka ekki á skólasetningardegi en hefja akstur á þriðjudeginum. Skólasetningin í Hrollaugsstaðrskóla verður föstudaginn 22. ágúst. Í Hafnarskóla verður boðið upp á lengda viðveru fyrir nemendur í 1. – 4. bekk með sama hætti og undanfarin ár. Fimm daga vikunnar geta nemendur dvalið í lengdri viðveru allt til kl. 17:00. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð og gjaldskrá í afgreiðslu sveitarfélagsins eða hér á vefnum. Þeim má síðan skila í Hafnarskóla.</description>
Flugeldasýningin hefst á miðnætti
      <description>Flugeldasýningin á Jökulsárlóni mun hefjast á miðnætti laugardagskvöldið 13.ágúst í stað þess að hefjast fyrr um kvöldið eins og auglýst var. Að sögn Einars Björns Einarssonar staðarhaldara þá er því miður ekki komið eins mikið myrkur og menn höfðu vonað fyrr um kvöldið þrátt fyrir að búið sé að seinka sýningunni um tvær vikur. Undirbúningur er þegar hafinn fyrir sýninguna sem mun verða hin glæsilegasta. Eins og áður þá mun félagar úr Björgunarfélagi Hornafjarðar taka á móti áhorfendum þegar þeir koma á svæðið. Aðgangseyrir sem rennur beint til Björgunarfélags Hornafjarðar er kr. 500 krónur fyrir fullorðna en frítt fyrir börn. Búist er við miklum fjölda manns og vilja björgunarsveitarmenn hvetja fólk til að mæta tímanlega svo komast megi hjá öngþveiti.</description>
Mastursmenn halda áfram að klífa Mastrið
      <description>Nú hafa 8. og 9 þáttur af Mastrinu verið settir á vefinn. Mastursmenn halda áfram að klífa Mastrið og eru farnir að nálgast toppinn enda bara einn þáttur eftir. Í 8. þættinum sýnir Gunnar fréttastjóri hver ræður og sér til þess að Mastrið standi hátt og tignarlegt sem aldrei fyrr. Boltanum er rúllað til Gísla þar sem hann fær til sín Frikka rokkara í sófann, en hann hafði meðferðis gítar og magnara. Frikki stelur hverri senunni af fætur annarri með ótrúlegu gítarspili í sófanum.  Frikki opnar sig fyrir áhorfendum og tjáir þeim að hann hafi alltaf ætlað að vera dýralæknir. Gunnar og Sindri skella sér í veiðiferð og hitta þar fyrir tvo unga og bráðefnilega fiskimenn sem kenna þeim réttu tökin á veiðistönginni og segja sannar veiðisögur. Gunnar sendir Gísla alla leið í höfuðborgina til að taka brottflutta Hornfirðinga í létt spjall og komast m.a að því hvort þeir telji sig ennþá vera Hornfirðinga.</description>
      <alt>Mastrið</alt>
NorðurÍss komin til að vera
      <description>Bragðefnavinnsla NorðurÍss hf. í gömlu mjólkurstöðinni virðist komin til að vera. Fyrirtækið hefur einbeitt sér að sölu bragðefna í Bandaríkjunum og eru komnir með viðskiptavini allt frá New Englands svæðinu á austurströndinni til Kaliforníu á vestur ströndinni og frá Chicago í norðri til Texas í suðri.  Þó venjan sé að senda bragðefnin með skipi, nýtti NorðurÍs sér nýju flugleið Icelandair til San Franciso, til að koma bragðenfum til viðkiptavinar, sem ekki gat beðið eftir seinfarnari flutningsleiðum. Strax að loknum sumarleyfum þegar starfsemin hefst þann 22. ágúst nk. fer framleiðslan á fullan skrið, til að framleiða upp í pantanir frá viðskiptavinum sem staðsettir eru allt frá Kaliforníu til Spánar.</description>
Línur farnar að skýrast í flestum flokkum
      <description>Nú er langt liðið á sumarið og línur farnar að skýrast í flestum flokkum. Yngri flokkarnir hafa staðið sig frábærlega í sumar einsog þeir gera alltaf. Báðir meistaraflokkarnir eru að keyra á heimamönnum að mestu leyti þetta sumarið og eru að gera flotta hluti í sínum riðlum. 7.flokkur kvenna fór á Símamót í sumar og gerðu góða ferð til Reykjavíkur og stóðu stúlkurnar sig einsog sannar hetjur og töpuðu aðeins einum leik..! 7.flokkur karla fór á Akranes í sumar og stóðu sig með stakri prýði og lentu í 2. og 3.sæti í sínum riðlum. Þetta er mjög góður árangur hjá þeim og þeir geta verið stoltir af sjálfum sér eftir sitt framlag þetta sumarið. 6.flokkur kvenna var einnig á Símamótinu einsog 7.fl.kvenna og voru sér og bæjarfélaginu til mikils sóma á mótinu og eiga þær hrós skilið fyrir árangur sinn.</description>
Lestaði eitt þúsund tonnum af steypumöl
      <description>Færeyska skipið Vitin kom til Hornafjarðar fyrir helgina og á laugardaginn lestaði það eitt þúsund tonnum af steypumöl sem fer til Reyðarfjarðar. Þetta er steypumöl sem dælt var upp úr Hornafjarðarós við síðustu dýpkun þar og var henni dælt upp á svæði við Óslandsbryggjuna. Vignir Júlíusson segir að hér sé um prufusendingu að ræða til MB Vallá sem síðan metur gæði efnisins og styrkleika. Algjör skortur er á nógu harðri möl á austfjörðum þ.e. eins og nota þarf í byggingaframkvæmdirnar á Reyðarfirði og hefur mölin sem notuð er verið flutt frá Noregi.</description>
      <alt>Vitin</alt>
Unglingalandsmót UMFÍ á Hornafirði árið 2007
      <description>Um nýliðna verslunarmannahelgi var haldið unglingalandsmót UMFÍ í Vík í Mýrdal. Þetta mót er haldið ár hvert og sóttust Ungmennasambandið Úlfljótur og Sveitarfélagið Hornafjörður eftir því að fá að halda það árið 2007. Við setningu mótsins í Vík tilkynnti Björn B. Jónsson formaður UMFÍ að unglingalandsmótið 2007 yrði haldið á Hornafirði. Þetta er mikið gleðiefni fyrir íþrótta- og fjölskyldufólk á Hornafirði því mótið snýst ekki bara um keppni heldur er þetta líka fjölskylduhátíð þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.</description>
40% aukning í gisti- og veitingaþjónustu í Freysnesi
      <description>Mikil aukning hefur verið í gisti- og veitingaþjónustu í Freysnesi í sumar, fullbókað í ágúst og  vel lítur út með haustið. Sömu sögu er að segja frá söluskálanum í Freysnesi þar er um 40% aukning. Mikil og jöfn umferð hefur verið í sumar og engin fækkun erlendra ferðamanna eins og sumir ferðaþjónustuaðilar hafa kvartað yfir. Jón Benediktsson í Freysnesi segir að fjöldi gesta hjá þeim um verslunarmannahelgina hafi verið svipaður og  undanfarnar helgar  og nokkuð af gestum verið á tjaldstæðinu við Freysnes. Um 25 manns vinnur við hótelið yfir sumarið og í sumar  hafa m.a. starfað þar fólk bæði frá Frakklandi og Þýskalandi og hafa sumir þeirra unnið þar áður og segir Jón að þetta sé allt hörkuduglegt og hreint frábært starfsfólk sem unnið hafi á hótelinu í sumar.</description>
      <alt>Freysnes</alt>
Ný hornfirsk vefverslun með hljómtæki
      <description>Opnuð hefur verið hornfirsk vefverslun með hljómtæki, Portus.is. Portus ehf. sem rekur Portus.is er í eigu þeirra Drengs Óla Þorsteinssonar og Jónu Bennýjar Kristjánsdóttur og eru þau bæði búsett á Hornafirði. Drengur Óla, verslunarstjóri Portus.is, segir að hér sé á ferðinni milliliðalaus innflutningur á hljómtækjum og vörum þeim tengdum á betra verði en Íslendingar eiga að venjast. Til að byrja með mun allur daglegur rekstur fyrirtækisins fara fram á Hornafirði þó svo að lager fyrirtækisins sé geymdur á Akureyri en í haust ætla þau að opna verslun með hljómtæki á Akureyri.</description>