Ágúst
Slatur_ Unnur Guðmundsdóttir
Slatur_ Unnur Guðmundsdóttir
Frá slátursölunni, Unnur Guðmundsdóttir (úr myndasafni)

01.09.2005 Ágúst

Alls verður slátrað um 600 dilkum

Sumarslátrun dilka hófst í sláturhúsi Norðlenska á Höfn í síðustu viku. Alls verður slátrað um 600 dilkum úr Suðursveit, Álftafirði og Breiðdal. Einar Karlsson sláturhússtjóri segir að dilkarnir séu vænir og meðalvigt þeirra 150 sem búið er að slátra vera 14.7 kg sem sé mjög gott miðað við sumarslátrun. Allt kjöt frá sl. hausti hjá afurðasölu Norðlenska á Höfn er uppselt og nú geta þeir sem áhuga hafa á að fá sér nýtt, ferskt eða frosið lambakjöt keypt heila skrokka í sláturhúsinu. Aðeins sex manns hafa starfað við slátrunina núna og ástæðuna fyrir því að svo fáliðað sé segir Einar einfaldlega vera þá að það sé ekkert fólk að fá til starfa.

Hugmyndin er að byrja haustslátrun 12.-13. sept. og það er allt útlit á að við þurfum að fá 25-30 útlendinga til starfa í sláturhúsið af þeim 38-40 starfsmönnum sem til þarf segir Einar. Hann á hann von á að fá slátrara frá Bretlandi og svo fólk frá ráðningarstofu á Írlandi sem eru með pólverja og fleira gott fólk á sínum snærum. Búið er að panta slátrun fyrir þrjátíu og eitt þúsund og fimmhundruð fjár í haust en var 24 þús. í fyrra og er þessi aukning vegna þess að nú kemur fé úr Vestur-Skaftafellssýslu og af Berufjarðarströnd.
Í haust er það Flytjandi sem sér um flutning sláturfjár á starfssvæði Norðlenska á Höfn.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica