Sindramenn komnir í undanúrslitin!!!
Eftir frábæran sigur á Víði úr Garði eru strákarnir í meistaraflokki komnir í undanúrslit 3. deildarinnar. Sindramenn komust yfir strax á 3. mínútu leiksins með marki frá Seval beint úr aukaspyrnu. Þessa forystu létu strákarnir ekki af hendi og leikurinn endaði 1-0. Sannarlega frábær úrslit og voru Víðismenn að tapa sínum fyrsta leik í sumar. Viðureignin endaði því 2-1 Sindra í vil þar sem fyrri leikur liðanna á Sindravöllum endaði 1-1 og baráttan heldur því áfram hjá Sindra en Víðir er úr leik.
Í undanúrslitunum mæta Sindramenn Leikni Fáskrúðsfirði og fer fyrri leikurinn fram á Sindravöllum nk. laugardag kl. 12:00. Seinni leikurinn fer síðan fram þriðjudaginn 6. september á Fáskrúðsfirði. Það lið sem vinnur þessa viðureign vinnur sér sæti að ári liðnu í 2. deildinni. Þarna er að sjálfsögðu um hörkuleiki að ræða og strákarnir þurfa því að taka á öllu sem þeir eiga og góður stuðning áhorfenda á laugardaginn myndi hjálpa þeim verulega í baráttunni.
Áfram Sindri!!!





Skrifa athugasemd