Í jöklanna skjóli
Heimildakvikmynd um horfna lifnaðarhætti í Skaftafellssýslum. Sýnd í Þjóðminjasafni Íslands
Þjóðminjasafn Íslands og Kvikmyndasjóður Skaftfellinga hafa tekið höndum saman um að sýna heimildakvikmyndina Í jöklanna skjóli sem Vigfús Sigurgeirsson ljósmyndari tók á árunum 1952-1954 í Skaftafellssýslum. Skýringartexta samdi Jón Aðalsteinn Jónsson og er hann jafnframt flytjandi textans. Kvikmyndin er í all mörgum þáttum og verða tveir til þrír þættir sýndir hverju sinni. Kvikmyndin verður sýnd í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands við Suðurgötu fyrsta fimmtudag hvers mánaðar næstu fjóra mánuði og verður fyrsti hlutinn sýndur fimmtudaginn 1. september kl. 17:00.
Dagskráin er sem hér segir:
1. september
Kvöldvaka
Gegningar og mjólkurvinnsla
6. október
Fýlatekja
Aflabrögð: veiði í sjó og vötnum
3. nóvember
Samgöngur: flutningar á sjó
Samgöngur: flutningar á landi og í lofti
1. desember
Kolagerð
Meltekja
Úr Mýrdal í Lón
Að lokinni kvikmyndasýningu hverju sinni verður safnið opið gestum til kl. 21:00 og ennfremur Kaffistofa og Safnbúð. Sérfræðingur Þjóðminjasafnsins mun leiða gesti um þá hluta grunnsýningar safnsins sem tengist efni kvikmyndarinnar hverju sinni.





Skrifa athugasemd