Ágúst
Áskorun
Áskorun
Áskorunin er rituð á listaverk eftir Sverrir Sveinbjörnsson, sem er skófla út stáli fest á gabróstein
Mynd 2 af 2
1 2

30.08.2005 Ágúst

Lítil skóflustunga getur orðið að nýrri sundlaug

Áður en síðasti fundur Bæjarráðs Hornafjarðar hófst afhenti hópur bæjarbúa áskorun til bæjarstjórnar um byggingu á nýrri sundlaug í tengslum við fyrirhugað unglingalandsmót sem haldið verður á Hornafirði 2007. Áskorunin er rituð á listaverk eftir Sverrir Sveinbjörnsson, sem er skófla út stáli fest á gabbróstein. Á listaverkið er ritað: Lítil skóflustunga getur orðið að nýrri sundlaug fyrir unglingalandsmótið 2007, ungdómnum og íbúum til vegs og virðingar. Látum ekki tækifærið framhjá okkur fara.

Undirbúningur fyrir landsmótið er þegar hafinn. Formaður UMFÍ er Björn J. Jónsson og formaður USÚ Ragnhildur Einarsdóttir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica