Ágúst
Hrogn og lifur hreinsuð
Hrogn og lifur hreinsuð (úr myndasafni)
Hrogn og lifur hreinsuð (úr myndasafni)

30.08.2005 Ágúst

Kynningarfundur á Hótel Höfn um byggðaþróun og samkeppni

Á morgun miðvikudaginn 31.ágúst verður haldinn kynningarfundur á Hótel Höfn um byggðaþróun og samkeppni á Austurlandi. Á fundunum mun Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra fjalla um áherslur í byggðarmálum og vaxtasamninginn. Auk hennar mun Baldur Pétursson frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu fjalla um vaxtasamninginn, undirbúning hans og áherslur. Albert Eymundsson bæjarstjóri mun fjalla um atvinnumál í Sveitarfélaginu. Þorvaldur Jóhannsson framkvæmdarstjóri SSA og Stefán Stefánsson frá Þróunarstofu Austurlands munu fjalla um atvinnumál á Austurlandi og aukið samstarf. Sævar Kristinsson, frá Netspor mun fjalla um klasa og samkeppnishæfi.

Í fundarlok munu verða umræður og opið fyrir fyrirspurnir. Fundarstjóri verður Elín Magnúsdóttir, formaður bæjarráðs. Fundurinn sem hefst kl. 12:00 er öllum opinn og eru fundargestir beðnir um að skrá sig í Ráðhúsi, í síma 470 8000.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica