Ágúst
Sindri - Ægir 20.8.2005
Sindri - Ægir 20.8.2005
Sindri - Ægir 20.8.2005
Mynd 4 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

29.08.2005 Ágúst

Jafntefli við Víði úr Garði

Í fyrsta leik sínum um laust sæti í 2. deild að ári gerðu strákarnir í meistaraflokki 1-1 jafntefli við Víði úr Garði. Leikurinn fór fram á Sindravöllum í blíðskaparveðri ef frá er skilið rokið og kuldinn. Skemmst er frá því að segja að Sindrastrákar voru mun betri aðilinn í leiknum, sköpuðu sér fjölda marktækifæra og misnotuðu m.a. vítaspyrnu. Seval Zahirovic skoraði mark Sindra úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á honum á 29. mínútu fyrri hálfleiks og þar við sat í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik var aftur brotið Seval innan teigs og Sindramenn fengu aðra vítaspyrnu en í þetta sinn brást Seval bogalistin. Það var síðan gegn gangi leiksins sem Víðismenn jöfnuðu leikinn á 68. mínútu með skallamarki. Seinni leikur Sindra og Víðis fer fram í Garðinum næsta þriðjudag og það er klárt að strákarnir munu selja sig dýrt þar til þess að freista þess að komast áfram í 4 liða úrslitin. Ekki er öll nótt úti enn þótt ekki hafi náðst sigur í heimaleiknum því Sindrastrákarnir hafa oft sýnt það og sannað að þeir eru bestir þegar á móti blæs.

Knattspyrnudeild Sindra vill koma á framfæri þakklæti til áhorfenda sem fjölmenntu á völlinn í því blíðskaparveðri sem var á laugardaginn (fyrir utan rokið og kuldann) og studdu vel við bakið á strákunum. Einnig er vert að minnast á þátt Landsbankans í leiknum á laugardaginn sem bauð bæjarbúum frítt á völlinn og vill knattspyrnudeild Sindra hér með þakka sérstaklega fyrir þetta rausnarlega boð.

Myndir sem fylgja þessari frétt eru frá leik meistaraflokks Sindra og Ægis sem fram fór fram laugardaginn 20. ágúst. Myndataka: Bjarni Ólafur Stefánsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica