Ágúst
Hafnarmótið 2005
Hafnarmótið 2005
Elvar Örn varð í 6. sæti
Mynd 5 af 11
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11

29.08.2005 Ágúst

Tvö golfmót á Silfurnesvelli um helgina

Það var mikið um að vera á Silfurnesvelli um helgina en þar fóru fram tvö golfmót. Á laugardag var spilað Landsbankamótið og á sunnudaginn fór fram Hafnarmótið. Á Landsbankamótinu var keppt í tveimur flokkum, kvenna og karla og gaf Landsbanki Íslands verðlaunin ásamt því að styrkja klúbbinn myndarlega. Forráðamenn golfklúbbsins vildu senda Landsbankanum og þeim aðilum sem styrktu Hafnarmótið bestu þakkir fyrir. 30 kylfingar tóku þátt í Hafnarmótinu sem fór fram á sunnudeginum. Þar var einnig var keppt í unglingaflokki. Þau fyrirtæki sem styrktu Hafnarmótið voru Olís, Opin kerfi, Krónan, Lónið, Smyrlabjörg, Árnanes, Húsgagnaval, Lyfja, TM, Nanný og Kaffi Hornið.


Úrslit í Landsbankamótinu sem fór fram laugardaginn 27.ágúst

Í kvenna flokki
1. sæti Guðný Helgadóttir með 34 punkta
2. sæti Birna Þórarinsdóttir með 36 punkta
3. sæti Guðrún Ester Þorsteinsdóttir með 35 punkta

Í karla flokki
1. sæti Guðni Rúnar Jónsson með 40 punkta
2. sæti Ólafur Ingi Guðmundsson með 36 punkta
3. sæti Helgi Örn Kristinnson með 35 punkta

Fyrir besta skor í kvenna og karlaflokki fengu Guðný Helgasdóttir og Ólafur Ingi Guðmundsson verðlaun.
Mælingaverðlaun voru tvenn og þau fengu Gísli Páll Björnsson og Jón Axelsson


Úrslit í Hafnarmótinu sem fór fram sunnudaginn 28.ágúst

1. sæti Sigurður Guðnason með 34 punkta
2. sæti Guðný Helgadóttir með 34 punkta
3. sæti Hermann Stefánsson með 32 punkta
4. sæti Jóhann Bergur Kiesel með 32 punkta
5. sæti Kristján S, Guðnason með 30 punkta
6. sæti Elvar Örn Unnsteinsson með 29 punkta

Unglingaflokkur
1. sæti Andri Snær Þorsteinsson 37 punkta
2. sæti Bragi Fannar Þorsteinsson 26 punkta
3. sæti Sævar Knútur Hannesson 20 punkta

Mælingar fengu á 3. braut Hákon Gunnarsson og Andri Snær Þorsteinsson
Mælingar á 5 braut Hákon Gunnarsson og Guðrún Júlía Jónsdóttir
Mælingar á 6 braut Jóhann Bergur Kiesel og Guðný Jensdóttir

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica