Ágúst
Meistaraflokkur_Sindri_IMG_5065
Meistaraflokkur_Sindri_IMG_5065
Tekist á um boltann (úr myndasafni)

26.08.2005 Ágúst

Landsbankinn býður á völlinn!!!

Frítt á leik Sindra og Víðis úr Garði í úrslitum 3. deildar karla á laugardaginn

Eftir dapra byrjun í vor hafa strákarnir í meistarflokki Sindra aldeilis spýtt í lófana og í næst síðustu umferð B ? riðils 3. deildarinnar tryggðu þeir sér sæti í úrslitakeppninni. Um síðustu helgi spiluðu þeir síðan við Ægi frá Þorlákshöfn og unnu mjög sannfærandi 6 ? 0 sigur. Eftir þann leik varð ljóst að Sindri mætir Víði úr Garði í
8-liða úrslitum. Leikið verður heima og að heiman. Fyrri leikurinn fer fram á Sindravöllum á laugardaginn en seinni leikurinn verður í Garðinum þriðjudaginn 30. ágúst. Það lið sem vinnur samanlagt þessa tvo leiki fer áfram í 4-liða úrslit og þar verður barist um sæti í 2. deildinni að ári liðnu.

Landsbankinn á Hornafirði hefur ákveðið að leggja knattspyrnudeildinni og strákunum í meistaraflokki lið með því að bjóða bæjarbúum frítt á völlinn. Þetta er rausnarlegt boð og það er vonandi að bæjarbúar svari kallinu og fjölmenni á völlinn.
Áfram Sindri

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica