Fjórði flokkur kvenna náði þriðja sætinu
Um síðastliðna helgi tóku þrír yngri flokkar frá Sindra þátt úrslitum Íslandsmótsins í knattspyrnu. Fimmti flokkur kvenna tók stefnuna á Akranes, fimmti flokkur karla skaust norður á Akureyri og fjórði flokkur kvenna fór í gegnum Akureyri og endaði á Ólafsfirði. Það er að sjálfsögðu óþarfi að taka það fram en það er auðvitað frábær árangur hjá þessum flokkum að komast í úrslitin í sínum mótum. Óhætt er að segja að allir flokkarnir hafi staðið sig frábærlega vel um helgina og áttu í fullu tré við mörg gríðarsterk félög. Einnig er mikilvægt að taka það fram að iðkendur Sindra voru félaginu sínu til sóma innan vallar sem utan.
Rétt að minnast sérstaklega á árangur fjórða flokks kvenna sem endaði í þriðja sæti á sínu móti. Þetta er sannarlega glæsilegur árangur hjá stelpunum og greinilegt að þarna er sterkur flokkur á ferðinni og að þjálfari þeirra, Jóna Benný Kristjánsdóttir hefur gert góða hluti með stelpurnar í sumar.
Til hamingju með góðan árangur krakkar.





Skrifa athugasemd