Ágúst
Skandia
Skandia
Skandia við Óslandsbryggju.

29.08.2005 Ágúst

Dæluskipið Skandía að störfum í Hornafjarðarósi

Í síðustu viku var búið er að dæla upp 10 þús. rúmmetrum af sandi úr rennunni í Hornafjarðarósi með dæluskipinu Skandía. Byrjað var á dælingu 11.ágúst og gekk verkið vel fyrstu dagana en undanfarið hefur sjólag ekki verið hagstætt en ölduhæð má ekki vera meiri en einn metir til að dæluskipið geti athafnað sig. Alls verður dælt 45 þús.rúmm.af sandi úr rennunni og á þá að vera greið leið fyrir hlaðin síldar og loðnuskip inn um ósinn. Helgi Már Pálsson bæjarverkfræðingur segir að hægt væri að ljúka verkinu á tíu dögum ef vel viðrar. Það tekur eina og hálfa klst. að dæla sandi í skipið og losa það. Vonast er til að verkinu verði lokið fyrir síldarvertíðina sem hefst í byrjun september. Verktaki við dýpkun rennunnar er Gáma og Tækjaleiga Austurlands.

Á næstu dögum er von á starfsmanni frá Siglingastofnun til að ákveða endanlega staðsetningu bryggju sem kemur framan við Netagerðina Ísfell í Óslandi. Efni í bryggjuna er væntanlegt á næstunni og hefjast framkvæmdir í haust.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica