Ungir athafnamenn við bryggjusmíði
Nokkrir efnilegir athafnamenn, þeir Gísli, Þorgils, Sævar, Alexander og Helgi Ernir notuðu síðustu dagana áður en skólinn byrjaði til að ljúka við bryggju sem þeir hafa verið að smíða við bakkann framan við Júllatúnið. Búið var að koma á flot traustlegum fleka, aðeins eftir að setja stefni á hann og sögðu strákarnir að þetta væri ágætis fleyta og fínt að sigla honum. Að sjálfsögðu sögðust þeir vera í björgunarvestum þegar farið væri eitthvað á flekanum, það er enginn almennilegur sjómaður eða veiðimaður sem ekki hefur öryggismálin í lagi.
Strákarnir sögðu að það væri alveg rosalega gaman að vinna við bryggjuna,útvega efni, smíða og bara allt sem til þarf til svona framkvæmda.
Þegar tækifæri gefst frá skólanum og náminu ætla þeir að sigla fleka sínum út á fjörð til veiða.




Skrifa athugasemd