Ágúst
Vöðlavík, Viðfjörður og Hellisfjörður 2005
Vöðlavík, Viðfjörður og Hellisfjörður 2005
Vöðlavík, Viðfjörður og Hellisfjörður 2005
Mynd 1 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

22.08.2005 Ágúst

Jeppa og gönguferð í Vöðlavík, Viðfjörð og Hellisfjörð

Ferðafélag Austur-Skaftafellssýslu stóð fyrir jeppa-og gönguferð í Vöðlavík,Viðfjörð og Hellisfjörð dagana 15.-17.júlí. Þátttakendur voru 18, sá elsti áttatíu ára alveg eldhress og sá yngsti tíu ára. Fararstjóri var Ragna Pétursdóttir sem einnig sá um skipulagningu ferðarinnar. Fyrsti áfangi ferðarinnar á föstudeginum var Vöðlavík þar sem gist var í skála Ferðafélags Fjarðarmanna og sumir voru í sinum hjól-og fellihýsum. Þegar allir voru mættir á staðinn og búnir að koma sér fyrir var farið í kvöldgöngu um nágrennið og kíkt á fólkið í Vöðlavík. Á laugardaginn var haldið yfir í Viðfjörð og gengið út Barðsnesið út að Barðsnesgerði, gengið í 3-4 tíma, síðan keyrt til baka í Vöðlavík, sumir keyrðu upp á Sanda og horfðu yfir Ýmadal og um kvöldið var grillað og farið í kvöldgöngu um svæðið.

Á sunnudagsmorgun var tekið saman og keyrt yfir á Norðfjörð þar sem farið var með Björgunarskipi Norðfirðinga yfir í Hellisfjörð, lagt við bryggjuna á Sveinsstöðum og farið að gömlu hvalstöðinni, sem var starfrækt í byrjun 20.aldarinnar og skoðað það litla sem eftir er af henni.Enn má þó sjá að mikið hefur verið umleikis þar á eyrinni á dögum hvalstöðvarinnar. Að lokinni heimsókn í Hellisfjörð var gengið til baka yfir Hellisfjarðarmúlann yfir til Norðfjarðar sem er um þriggja tíma gangur. Veður var eins og best varð á kosið alla dagana og ferðin í heild hin ánægjulegasta.

Sumarbústaðar eignendur á Kirkjubóli voru með okkur á föstudag og laugardag, sagði Ragna, og fengum við að fylgjast með netalögn og fiskirí hjá þeim og fræddu þeir okkur um ýmislegt um fyrri lifnaðarhætti í Vöðlavík. Farastjóri með okkur báða dagana var Þorgeir Þórarinsson sem er sonur síðasta ábúandans á Viðfjarðarbænum.

Þegar Ragna var komin heim hringdi Þórarinn í hana og fór með þessa vísu.
Á hæðum yfir Ýmadal
æðri kraftar þinga.
Teygjum upp hönd í himnasal
hluti Hornfirðinga.

Byggð í Viðfirði og Hellisfirði fór í eyði fyrir og um 1955. Út með Viðfirði voru bæirnir Barðsnes sem var ystur, Barðsnesgerði, Gerðisstekkur, Stuðlar, Tranastaðir og við botn fjarðarins var höfuðbólið Viðfjörður þar sem er stórt og fallegt hús byggt 1938 og er því vel við haldið af eigendum þess. Í Hellisfirði voru bæirnir Sveinsstaðir og Hellisfjörður. Áður fyrr lá þjóðleiðin til Neskaupsstaðar upp frá Eskifirði, um Dys og út í Viðfjörð og þaðan voru bílar og farþegar ferjaðir með bát til Neskaupsstaðar þar til 1949 þegar vegurinn yfir Oddskarð var opnaður.

Sjá myndasafn (Steinþór Hafsteinsson)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica