Stór helgi í knattspyrnunni
Þessa helgi munu þrír yngri flokkar hjá knd. Sindra taka þátt í úrslitakeppnum knattspyrnusambands Íslands. Þeir flokkar sem um ræðir eru 5. flokkur karla og kvenna og 4. flokkur kvenna. Tveir flokkar keppa fyrir norðan en það eru 5. flokkur karla sem keppir á Akureyri og 4. flokkur kvenna sem keppir á Ólafsfirði. 5. flokkur kvenna keppir hins vegar á Akranesi. Það er frábær árangur hjá þessum flokkum að vinna sína riðla og komast í úrslitakeppnina og etja kappi við þá bestu á landinu. Hér er að sjálfsögðu um gríðarlega mikil ferðalög að ræða fyrir fjölda iðkenda og það hefur verið mikið púsluspil að koma þessu heim og saman. En með samstilltu átaki foreldra og knd. Sindra hafðist það að lokum. Það verður gaman að sjá hvernig flokkunum okkar kemur til með að ganga í úrslitunum og vonum við að sjálfsögðu að þeir komi heim með sem flesta sigra. Aðalmálið er þó alltaf að allir skemmti sér sem best og að krakkarnir njóti samverunnar. Óneitanlega er þó gaman til þess að vita að á bilinu 40 ? 50 iðkendur á vegum Sindra eru að taka þátt í úrslitakeppni KSÍ.
Strákarnir í 4. flokki leggja einnig upp í langferð um þessa helgi. Þeir eiga að spila tvo leiki í C ? riðli Íslandsmótsins í 11 manna bolta. Mótherjar þeirra um þess helgi verða Ægir Þorlákshöfn og Fjölnir í Grafarvogi. Strákarnir hafa verið að spila vel í sumar og eigum við þar marga efnilega knattspyrnumenn.
Að lokum er rétt að minna á leik hjá meistaraflokki karla sem fram fer á Sindravöllum á klukkan tvö. Þar mæta strákarnir Ægi Þorlákshöfn í síðasta leik B ? riðils 3. deildarinnar. Nú þegar hafa strákarnir tryggt sér öruggt sæti í úrslitunum en það ræðst í síðustu umferðinni hvort þeir verða í 1. eða 2. sæti riðilsins. Úrslitakeppnin hefst síðan um næstu helgi þar sem átta lið berjast um tvö laus sæti í 2. deild.





Skrifa athugasemd