Sumarstarfi sunddeildar Sindra lokið
Sumarstarfi sunddeildarinnar Sindra lauk í gær með sundmóti og pizzaveislu á eftir. Keppendur stóðu sig vel og létu rok og rigningu ekki spilla keppnisgleðinni. Þess má m.a. geta að sex boðsundslið kepptu á mótinu. Til stóð að grilla meðan á verðlaunaafhendingu stæði en vegna rigningar var leitað skjóls í Hafnarskóla og pantaðar pizzur þangað. Mikil gróska hefur verið í sunddeildinni á síðustu misserum og æfðu um 40 krakkar sund í sumar. Auk þess var fullt á þau 3 námskeið sem í boði voru fyrir 4-5 ára börn í júní og fram í júlí, en 10 komust á hvert námskeið. Farið var á sumarhátíð ÚÍA í sumar auk þess sem nokkrir sundiðkendur kepptu í sundi á Unglingalandsmótinu í Vík. Sundþjálfari í sumar var Barbara Dröfn Fischer sem snýr sér að íþróttakennslu í höfuðborginni í vetur.
Gott samstarf hefur verið við starfsfólk sundlaugarinnar og þrátt fyrir litla sundlaug þá hefur verið boðið upp á nokkurn fjölda sundæfinga og hefur það rekist ágætlega með almennri sundiðkun og velvilja allra sem að málinu komu. Ný og stærri sundlaug er þó að sjálfsögðu efst á óskalista allra aðila innan sunddeildarinna og væntanlega flestra sem stunda sund í Hornafirði og vonandi fer að örla á fyrstu merkjum hennar.
Nú verður nokkra vikna frí í sunddeildinni en þegar líða fer á september hefjumst við handa að nýju. Úrslit sundmótsins voru sem hér segir:
Úrslit úr Sundmóti Sindra 16. ágúst 2005
50 m skriðsund 13 ára +
1. Iðunn Tara Ásgrímsdóttir 41,22 sek
2. Sunna Jónsdóttir 44,88 sek
3. Karitas B. Óskarsdóttir 46,02 sek
25 m skriðsund 7 ?8 ára
Strákar
1. Hafþór Snorrason 38,61 sek
2. Kristófer L. Hansson 46,84 sek
3. Þorkell Ragnar Grétarsson 49,27 sek
Stelpur
1. Ingibjörg L. Ragnarsdóttir 38,17 sek
2. Anna Birna Elvarsdóttir 39,78 sek
3. Hildur Ósk Hansdóttir 50,97 sek
4. Birta Karlsdóttir 51,21 sek
5. IngaKristín Kristjánsdóttir 56,14 sek
6. Sesselja Ólafsdóttir 59,31 sek
25 m Skriðsund 9 ? 10 ára
Strákar
1. Þorkell Óskar Vignisson 27,29 sek
Stelpur
1. Guðlaug Jóna Karlsdóttir 27,10 sek
2. María Hjördís Karlsdóttir 29,73 sek
3. Ásdís Pálsdóttir 33,42 sek
4. Heiðdís Marteinsdóttir 33,59 sek
50 m skriðsund 11 ? 12 ára
Strákar
1. Finnur Jónsson 1.05,79 mín
2. Ingólfur Waage 1.20,93 mín
Stelpur
1. Rebekka Dröfn Ólafsdóttir 46,22 sek
2. Kolbrún Lilja Skúladóttir 56,50 sek
3. Sandra Björg Gunnarsdóttir 1.02,26 mín
100 m bringusund 13 ára +
Strákar
1. Fannar Blær Egilsson 2.37,62 mín
Stelpur
1. Iðunn Tara Ásgrímsdóttir 1.49,44 mín
2. Karitas B. Óskarsdóttir 1.53,89 mín
25 m bringusund 7-8 ára
Strákar
1. Kristófer L. Hansson 43,38 sek
2. Þorkell Ragnar Grétarsson 54,70 sek
3. Hafþór Snorrason 57,75 sek
Stelpur
1. Birta Karlsdóttir 43,00 sek
2. Anna Birna Elvarsdóttir 46,50 sek
3. Ingibjörg L. Ragnarsdóttir 57,56 sek
4. Sesselja Ólafsdóttir 1.10,91 mín
5. Hildur Ósk Hansdóttir 1.12,96 mín
6. IngaKristín Kristjánsdóttir 1.24,82 mín
25 m bringusund 9 ? 10 ára
Strákar
1. Þorkell Óskar Vignisson 31,81 sek
2. Ingólfur Jónsson 40,45 sek
Stelpur
1. Ásdís Pálsdóttir 30,26 sek
2. María Hjördís Karlsdóttir 30,78 sek
3. Guðlaug Jóna Karlsdóttir 31,34 sek
4. Heiðdís Marteinsdóttir 35,16 sek
50 m bringusund 11 ?12 ára
Strákar
1. Júlían Bent Egilsson 1.02,26 mín
2. Finnur Jónsson 1.06,22 mín
3. Ingólfur Waage 1.31,88 mín
Stelpur
1. Rebekka Dröfn Ólafsdóttir 55,45 sek
2. Kolbrún Lilja Skúladóttir 1.01,59 mín
3. Sandra Björg Gunnarsdóttir 1.06,40 mín
50 m baksund 13 ára +
Strákar
1. Fannar Blær Egilsson 1.25,22 mín
Stelpur
1. Karitas B. Óskarsdóttir 55,53 sek
2. Iðunn Tara Ásgrímsdóttir 55,60 sek
3. Sunna Jónsdóttir 56,18 sek
25 m baksund 7 - 8 ára
Strákar
1. Hafþór Snorrason 42,66 sek
2. Kristófer L. Hansson 50,41 sek
3. Þorkell Ragnar Grétarsson 1.20,87 mín
Stelpur
1. Anna Birna Elvarsdóttir 36,66 sek
2. Ingibjörg L. Ragnarsdóttir 45,50 sek
3. Birta Karlsdóttir 50,89 sek
4. Hildur Ósk Hansdóttir 1.15,19 mín
5. Sesselja Ólafsdóttir 1.24,12 mín
6. Inga Kristín Kristjánsdóttir 1.28,04 mín
25 m baksund 9-10 ára
Strákar
1. Þorkell Óskar Vignisson 38,86 sek
Stelpur
1. Guðlaug Jóna Karlsdóttir 36,56 sek
2. María Hjördís Karlsdóttir 38,75 sek
3. Ásdís Pálsdóttir 38,98 sek
4. Heiðdís Marteinsdóttir 44,33 sek
50 m baksund 11 ? 12 ára
Strákar
1. Ingólfur Waage 1.41.20 mín
2. Júlían Bent Egilsson 1.41,25mín
Stelpur
1. Rebekka Dröfn Ólafsdóttir 55,84 sek
2. Kolbrún Lilja Skúladóttir 1.09,65 mín
3. Sandra Björg Gunnarsdóttir 1.21,73 mín
100 m fjórsund 13 ára +
Stelpur
1. Iðunn Tara Ásgrímsdóttir 1.52,28 mín
2. Rebekka Dröfn Ólafsdóttir 1.56,65 mín
3. Karitas B. Óskarsdóttir 1.57,78 mín
Boðsund 10 ára og yngri
1. Heiðdís, María. Þorkell og Guðlaug 2.12,28 mín
2. Anna Birna, Þorkell, Ingibjörg og Kristófer 3.01,28 mín
3. Birta, Hafþór, Hildur og Inga Kristín 3.32,97 mín
Boðsund 11 ára +
1. Fannar, Karitas, Iðunn og Sunna 1.36,40 mín
2. Ásdís, Kolbrún, Sandra og Rebekka 1.51,44 mín
3. Júlían, Ingólfur,Ingólfur og Finnur 2.22,59 mín





Skrifa athugasemd